Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Rakel Sveinsdóttir skrifar 5. október 2026 07:03 Eitt sinn þótti það varhugavert að sjá á ferilskrá fólk skipta um starf of oft. Í dag er sú taktík hins vegar nýtt sem stökkpallur; fyrir starfsframan og til að hraða hækkun launa. Sérstaklega á þetta við um yngri kynslóðir. Vísir/Getty Hér áður fyrr þótti það bera vott um óstöðugleika eða skort á tryggð ef fólk staldraði stutt við á hverjum vinnustað.
Í dag er viðhorfið hins vegar að breytast hratt á alþjóðlegum vinnumarkaði. Svokallað „vinnu-hopp“ (e. job-hopping) er að sýna sig sem hröð þróun en það í raun þýðir að fólk skiptir markvisst um starf á 12-24 mánaða fresti. Í Evrópu er oft vísað í þetta sama fyrirbæri í skýrslum sem job-to-job mobility. Sumsé: Það sem áður þótti skortur á tryggð er orðið að meðvitaðri taktík í starfsframa. Hvernig stendur á þessu? Jú, að baki liggur einföld hagfræði. Því erlendar rannsóknir og vinnumarkaðsgögn sýna að starfsfólk sem skiptir reglulega um vinnustað nær að jafnaði mun hraðari launahækkunum og stöðuhækkunum en þeir sem bíða eftir árlegum samningum eða launaviðtölum hjá sama fyrirtæki. Þá líta yngri kynslóðir, sérstaklega í tækni-, sérfræði- og markaðsgeirum, í auknum mæli á starfsferilinn sem safn fjölbreyttra verkefna og færni frekar en hefðbundinn starfsaldursstiga innan eins fyrirtækis. Þetta virðist sýna sig bæði vestanhafs og í Evrópu. Því hvort sem litið er til bandarískra mælinga ADP eða greininga OECD og Evrópska seðlabankans er niðurstaðan svipuð: starfsfólk sem skiptir reglulega um vinnustað nær að jafnaði hraðari launavexti og kjarabótum en þeir sem bíða eftir hefðbundnum hækkunum hjá sama vinnuveitanda. Stökkpallur en gildrur Í nýlegri umfjöllun Fast Company er bent á að æ fleiri taki að sér störf sem þeir vita fyrirfram að séu aðeins tímabundinn viðkomustaður — eins konar stökkpallur í átt að öðru markmiði. Slík störf geta nýst vel til að læra á ný kerfi, kynnast nýjum geira eða bæta eftirsóttum punktum á ferilskrána. En þessari taktík fylgja einnig gildrur. Sérfræðingar í mannauðsmálum sem rætt er við benda á að stærsta hættan felist í andlegu brotthvarfi: að starfsmaðurinn „skrái sig út í huganum“ löngu áður en hann lætur af störfum. Ef fólk mætir í tímabundna starfið með hálfum hug og lágmarksáreynslu glatar það tækifærinu til að byggja upp færni, læra nýja hluti og skapa sér traust tengsl. Þótt aðferðin geti skilað hraðari launavexti er fagmennska lykilatriði, sérstaklega í litlu og samþættu samfélagi eins og hér. Því þótt staldrað sé stutt við mun fólk muna hvernig viðkomandi stóð sig, hvernig viðkomandi vann í teymi eða skildi við sig við starfslok. Fólk sem telst til samstarfsfólks eða stjórnenda okkar í dag getur auðveldlega verið ráðningarstjórar, viðskiptavinir eða samstarfsaðilar á morgun. Niðurstaðan virðist því vera sú að vinnu-hopp geti reynst öflug leið til að flýta fyrir framgangi og tekjuvexti — svo lengi sem stökkpallurinn sé nýttur til fulls og engin sviðin jörð sé skilin eftir.
Starfsframi Tengdar fréttir Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði „Ætli hvert heimsbikarsmót sé ekki að færa vinningshöfum sem samsvarar átta milljónum íslenskra króna sem þeir sem eru í topp tíu besta hópnum eru þá að vinna nokkrum sinnum á ári,“ segir Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir afrekskona á skíðum. 12. mars 2026 07:00 Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Velgengnissögur þar sem gervigreindin er nýtt sem tækifæri eru að verða æ meira áberandi. Fyrirtækið Raxiom er gott dæmi um slíkt fyrirtæki. Raxiom þróar og selur Jónsbók; hugbúnaðarkerfi fyrir lögmenn. 26. desember 2025 07:02 Öðruvísi starfsframi: „Davíð, getur þú mætt eftir 30 mínútur?“ Það er svo gott að vera minnt á það reglulega að við þurfum ekki öll að feta sömu leið. Og eins að lífið getur tekið okkur á svo skemmtilegar nýjar brautir. Það sem við kannski eitt sinn héldum að yrði framtíðin, reynist á endanum fjarri lagi. 6. október 2025 07:00 Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ „Ég held ég hafi haldið þegar ég var yngri að jafnvægi væri áfangastaður sem ég kæmist á,“ segir Sigurlaug Helga Pétursdóttir, lögfræðingur hjá Festi, og hlær. 1. desember 2025 07:00 Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur. 20. maí 2026 07:04 Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði „Ætli hvert heimsbikarsmót sé ekki að færa vinningshöfum sem samsvarar átta milljónum íslenskra króna sem þeir sem eru í topp tíu besta hópnum eru þá að vinna nokkrum sinnum á ári,“ segir Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir afrekskona á skíðum. 12. mars 2026 07:00
Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Velgengnissögur þar sem gervigreindin er nýtt sem tækifæri eru að verða æ meira áberandi. Fyrirtækið Raxiom er gott dæmi um slíkt fyrirtæki. Raxiom þróar og selur Jónsbók; hugbúnaðarkerfi fyrir lögmenn. 26. desember 2025 07:02
Öðruvísi starfsframi: „Davíð, getur þú mætt eftir 30 mínútur?“ Það er svo gott að vera minnt á það reglulega að við þurfum ekki öll að feta sömu leið. Og eins að lífið getur tekið okkur á svo skemmtilegar nýjar brautir. Það sem við kannski eitt sinn héldum að yrði framtíðin, reynist á endanum fjarri lagi. 6. október 2025 07:00
Jafnvægi heimilis og vinnu: „Lífið er meira en titill“ „Ég held ég hafi haldið þegar ég var yngri að jafnvægi væri áfangastaður sem ég kæmist á,“ segir Sigurlaug Helga Pétursdóttir, lögfræðingur hjá Festi, og hlær. 1. desember 2025 07:00
Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Það er ekkert sem kennir okkur jafn góðar lexíur eða styrkir og mistök sem við náum að draga lærdóm af. Því ekkert okkar getur litið í baksýnisspegilinn og ekki séð hvar eða hvernig við hefðum mátt gera betur. 20. maí 2026 07:04