Komin heim eftir að mannræningjar reyndu að selja hana á uppboði Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. ágúst 2017 19:35 Chloe Ayling, tvítug fyrirsæta, var numin á brott í Mílanó og haldið í gíslingu í sex daga. Skjáskot/Instagram
Bresk fyrirsæta, sem rænt var í Mílanó á Ítalíu og haldið í gíslingu í sex daga, er komin aftur heim til sín. BBC greinir frá. Hin tvítuga Chloe Ayling var stödd í Mílanó vegna myndatöku. Lögregluyfirvöld á Ítalíu segja tvo menn hafa ráðist á hana þann 11. júlí síðastliðinn, byrlað henni ólyfjan og rænt henni. Mennirnir eru taldir hafa ætlað að selja Ayling á uppboði á netinu fyrir 230 þúsund pund eða um 31,5 milljónir íslenskra króna. Ayling var handjárnuð við kommóðu í svefnherbergi húss í bænum Borgial skammt frá Tórínó. Þar dúsaði hún í sex daga þar til henni var sleppt. Hún sagðist allan tímann hafa óttast um líf sitt og lýsti prísundinni sem „hryllilegri lífsreynslu.“ Pólskur ríkisborgari, Lukasz Herba, sem búsettur er í Bretlandi hefur verið handtekinn grunaður um að hafa rænt Ayling. Lögregluyfirvöld á Ítalíu, Póllandi og Bretlandi fara nú með rannsókn málsins.Lukasz Pawel Herba, pólskur ríkisborgari, hefur verið handtekinn vegna málsins.Vísir/AFP
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira