Viðbragða að vænta vegna United Silicon Jóhann K. Jóhannsson skrifar 23. ágúst 2017 19:45
Frá því að ljósbogaofn United Silicon var gangsettur á síðasta ári hefur Umhverfisstofnun borist meira en fimmtán hundruð kvartanir vegna mengunar frá verksmiðjunni. Umhverfisstofnun segir að viðbragða sé að vænta vegna þess eftirlits sem farið hefur fram undanfarna mánuði. Íbúafundur verður haldinn í Reykjanesbæ á morgun vegna verksmiðjunnar og munu fulltrúar frá bæjarstjórn og Umhverfisstofnun sitja fundinn. „Það stendur yfir vinna hjá Umhverfisstofnun á yfirferð frávika, uppgjöri frávika frá því að starfsemi hófst, og eins viðbrögð við því hvernig gengið hefur síðan fyrirtækið fékk heimild til uppkeyrslu á ný í maí síðastliðnum,“ segir Sigrún Ágústsdóttir, sviðstjóri hjá Umhverfisstofnun.Hvernig hefur verið tekist á við sífelldar bilanir frá því að þið heimiluðuð gangsetningu?„Við höfum fengið reglulega gögn frá fyrirtækinu um afl ofnsins. Við höfum farið yfir niðurstöðu mælinga og þessara sérstöku mælinga sem farið var í af norsku rannsóknarstofunni. Við höfum verið að vinna úr kvörtunum íbúa og svarað þeim. Þetta er auðvitað talsvert verk en í þessu felst okkar vinna,“ segir Sigrún. Þið hafið fengið um 400 kvartanir bara í ágústmánuði vegna lyktarmengunar. Þær eru komnar á fimmtánda hundrað. Hvað á að leyfa þessu að viðgangast lengi? „Þetta er allt í vinnslu hjá stofnunni. Viðbrögð við því hvernig hefur gengið og það þarf að senda fyrirtækinu skilaboð um það hvaða úrbóta þarf að grípa til.“ Er fregna að vænta frá ykkur og ykkar eftirliti?„Þetta er í vinnslu eins og ég sagði en það tekur ekki langan tíma að vinna úr þessu eins og komið er.“Kvartanir frá íbúum vegna mengunar frá verksmiðjunni skipta hundruðum síðustu misserin.vísir/vilhelmKvartanir íbúa Reykjanesbæjar eru orðnar fleiri en eitt þúsund Starfsemi United Silicon hefur verið þyrnum stráð frá því ljósbogaofn verksmiðjunnar var gangsettur 13. nóvember á síðasta ári en strax í upphafi tóku kvartanir að berast frá íbúum Reykjanesbæjar vegna lyktarmengunar. Íbúar eru orðnir langþreyttir á sífelldum tilraunum við gangsetningu ofnsins en vandamálið virðist snúa að því að ekki hefur verið hægt að keyra verksmiðjuna á fullum afköstum. Kvartanir íbúa Reykjanesbæjar eru orðnar fleiri en eitt þúsund og fóru fyrst að berast að berast Umhverfisstofnun aðeins tveimur dögum eftir að ljósbogaofninn var gangræstur en þar á eftir kom holskefla kvartana. Kvartanir eins og mikil óþægindi í hálsi, nefi og augum. Höfuðverkur, aukin astmaeinkenni og erfitt að draga andann eru algengar í kvörtunum til stofnunarinnar jafnt frá fullorðnum sem og börnum. Þrír brunar orðið á athafnasvæði verksmiðjunnar og eftir eldsvoða þann 18. apríl síðastliðinn stöðvaði Umhverfisstofnun starfsemi verksmiðjunnar og voru sérfræðingar frá Noregi og framleiðendur búnaðarins fengnir til þess að finna lausn á lyktarmengun frá verksmiðjunni. Frá upphafi hafa rafskaut ítrekað brotnað, nú síðast í gær eftir að ofninn var endurræstur, sem hefur þær afleiðingar að slökkva þarf á honum aftur. Þá tapaði verksmiðjan máli gegn Íslenskum aðalverktökum og var verksmiðjunni gert af gerðardómi að greiða fyrirtækinu einn milljarð króna sem hefur reynst þungur biti. Á morgun munu andstæðingar stóriðju í Helguvík halda íbúafund vegna stöðu stóriðjunnar en í síðustu viku veitti Héraðsdómur Reykjaness stjórn United Silicon heimild til greiðslustöðvunar til þess að ná bindandi nauðasamningum við lánardrottna. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar bókaði svo á fundi sínum í síðustu viku þá ósk til Umhverfisstofnunar að verksmiðjunni yrði lokað á meðan nauðsynlegar úrbætur eru gerðar til að koma í veg fyrir mengun.
United Silicon Tengdar fréttir Skora á yfirvöld að loka verksmiðju United Silicon Hluti íbúa Reykjanesbæjar sagður hafa „ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum“ vegna mengunar sem gengur þvert á forsendur starfleyfis verksmiðjunnar. 18. ágúst 2017 23:58 Formaður bæjarráðs segir Reykjanesbæ lifa af án Sameinaðs Silicons „Þetta kemur á óvart,“ segir Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ. Hann gerir ráð fyrir því að bæjarráð fari yfir málið á fundi sínum á fimmtudaginn. 15. ágúst 2017 06:00 Kísilmálmverksmiðja United Silicon annar ekki eftirspurn "Við önnum ekki eftirspurn,“ segir Kristleifur Andrésson, talsmaður United Silicon, um framleiðslu kísilmálmverksmiðjunnar í Helguvík. Félagið hefur flutt út kísilmálm frá Helgavíkurhöfn hálfsmánaðarlega frá því í byrjun desembermánaðar í fyrra og segir Kristleifur verðið á erlendum mörkuðum vera á hraðri uppleið. 18. ágúst 2017 06:00 Telja nauðsynlegt að stöðva rekstur kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons Bæjarstjóri segir ljóst að mengun frá verksmiðjunni sé ekki í samræmi við umhversmat eða aðrar forsendur fyrir verksmiðjunni. 17. ágúst 2017 15:44 Stjórn United Silicon segir að stöðvun verksmiðjunnar leysi ekki vandann Stjórn United Silicon segist taka áhyggjur bæjarráðs Reykjanesbæjar alvarlega. 17. ágúst 2017 18:54 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Skora á yfirvöld að loka verksmiðju United Silicon Hluti íbúa Reykjanesbæjar sagður hafa „ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum“ vegna mengunar sem gengur þvert á forsendur starfleyfis verksmiðjunnar. 18. ágúst 2017 23:58
Formaður bæjarráðs segir Reykjanesbæ lifa af án Sameinaðs Silicons „Þetta kemur á óvart,“ segir Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ. Hann gerir ráð fyrir því að bæjarráð fari yfir málið á fundi sínum á fimmtudaginn. 15. ágúst 2017 06:00
Kísilmálmverksmiðja United Silicon annar ekki eftirspurn "Við önnum ekki eftirspurn,“ segir Kristleifur Andrésson, talsmaður United Silicon, um framleiðslu kísilmálmverksmiðjunnar í Helguvík. Félagið hefur flutt út kísilmálm frá Helgavíkurhöfn hálfsmánaðarlega frá því í byrjun desembermánaðar í fyrra og segir Kristleifur verðið á erlendum mörkuðum vera á hraðri uppleið. 18. ágúst 2017 06:00
Telja nauðsynlegt að stöðva rekstur kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons Bæjarstjóri segir ljóst að mengun frá verksmiðjunni sé ekki í samræmi við umhversmat eða aðrar forsendur fyrir verksmiðjunni. 17. ágúst 2017 15:44
Stjórn United Silicon segir að stöðvun verksmiðjunnar leysi ekki vandann Stjórn United Silicon segist taka áhyggjur bæjarráðs Reykjanesbæjar alvarlega. 17. ágúst 2017 18:54