Kostnaður við áheitasöfnun nam 23 milljónum frá 2012 Sæunn Gísladóttir og Þórgnýr Einar Albertsson skrifa 21. ágúst 2017 14:26 Íslandsbanki ætlar að auka stuðning við hlaupið í ár.
Alls hefur kostnaður við áheitasöfnun fyrir Reykjavíkurmaraþonið numið tæpum 23 milljónum króna frá árinu 2012 og hefur sá peningur fengist með því að taka 5 til 7 prósenta hlut af áheitasöfnun hvers árs. Íslandsbanki tilkynnti um helgina, í kjölfar gagnrýni frá einni söfnunarstjörnu maraþonsins, að ekki yrði lengur tekið af söfnunarfé til að standa undir kostnaði eftir gagnrýni nokkurra hlaupara. Mun bankinn framveigis greiða allan kostnað sem fellur til við söfnunina. Stærstur hluti kostnaðar undanfarin ár hefur farið í tölvukerfið að baki vefsíðunni sem hýsir áheitasöfnunina. Sá kostnaður var mestur árið 2013, eða 3.052.380 krónur, en minnstur ári áður, 2.326.438 krónur. Launakostnaður var næststærsti liðurinn en hann lækkaði árið 2015 eftir að mögulegt varð í fyrsta sinn að greiða með debetkortum. Var sá kostnaður mestur árið 2014, 2.248.575 krónur, en minnstur árið 2012, 635.600 krónur. Færslugjöld eru svo þriðji kostnaðarliðurinn en þau voru hæst í fyrra, 802.582 krónur. Liðurinn hefur stækkað ár frá ári samhliða því sem áheitasöfnunin stækkar. Þessar upplýsingar má finna í tilkynningu Íþróttabandalags Reykjavíkur frá því í gær. Segir þar að bandalagið fagni því að Íslandsbanki ætli sér að greiða kostnað söfnunarinnar og að hlutfallinu sem tekið var af söfnunarfé hafi alltaf verið haldið í lágmarki
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira