Land Cruiser Black sýndur hjá Toyota Finnur Thorlacius skrifar 31. ágúst 2017 16:39 Toyota Land Cruiser Black er búinn aukahlutapakka að verðmæti 728.000 kr. sem fylgir bílnum án aukakostnaðar.
Laugardaginn 2. september kl. 12 – 16 verður fyrsta stórsýning haustsins hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Selfossi og Akureyri. Á sýningunni má sjá allt það nýjasta frá Toyota en stjarna sýningarinnar verður glæsileg sérútgáfa af Land Cruiser - Land Cruiser 150 Black sem er búinn aukahlutapakka að verðmæti 728.000 kr. og fylgir bílnum án aukakostnaðar. Með Land Cruiser 150 Black fylgja svartar felgur og GoodYear heilsársdekk, húddhlíf, toppgrindarbogar, krómlisti á afturhlera, krómstútur á púst, krómhlíf á spegla, hlíf á afturstuðara, hliðarlistar með krómi og gluggavindhlífar. Land Cruiser tekur sig sannarlega vel út með þessum aukabúnaði eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og sumir segja að Íslandsbíllinn hafi aldrei verið fallegri.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent