Barnastarf kirkjunnar í öllum litum regnbogans 31. ágúst 2017 10:00 Hafdís og Klemmi taka þátt í sunnudagaskólanum í vetur. Þau koma fram í stuttmyndum og kenna börnunum ýmislegt um vináttuna, gleðina og lífið og Guð!
Sunnudagaskólinn er enginn skóli. Hann er ekki einu sinni alltaf á sunnudögum. Þess vegna gengur hann víða undir nafninu Barnastarf kirkjunnar. Barnastarfið er víða fjölsótt og fjörugt en einnig er hægt að finna litla og notalega sunnudagaskóla. Barnastarfið sækja foreldrar eða afar og ömmur með börnin sín eða barnabörn og eiga þar gæðastund saman þar sem tónlist er í hávegum höfð. Það er sungið og dansað við fjörug lög. Fræðslan fer fram með aðstoð skemmtilegra stuttmynda þar sem Hafdís og Klemmi, Nebbi eða Tófa sýna hvað í þeim býr og þá er húmorinn ekki langt undan.Söngkonan Regína Ósk syngur titillag sunnudagsskólans, Í öllum litum regnbogans, ásamt börnum úr sunnudagaskólanum. Hver og einn sunnudagaskóli getur æft dansinn og sönginn og sent inn myndband á barnatrú.is þar sem þau verða birt.Börnin læra lífsleikni þekktra Biblíusagna og kynnast því hvað það er að biðja. Víða eru brúðuleikhús með Rebba ref og Mýslu, en þau glíma við alls konar þrautir og vangaveltur. Stundum finna þau óvænta hluti í fjársjóðskistunni sinni. Að þessu sinni ber fræðsluefni barnastarfsins yfirskriftina Í öllum litum regnbogans, þar sem lífinu er fagnað í allri sinni dýrð. Í barnastarfinu vinnur fjöldi skemmtilegs fólks sem nýtur þess að eiga góðar stundir með börnunum og fjölskyldum þeirra. Söngkonan Regína Ósk syngur lagið Í öllum litum regnbogans ásamt börnum úr sunnudagaskólanum. Það er titillag sunnudagaskólans í vetur. Markmiðið er að hver sunnudagaskóli æfi dansinn og sönginn og sendi inn hópmynd á barnatrú.is þar sem þau verða birt. Komdu með í þennan dans, í von og gleði kærleikans. Fetum veg frelsarans í öllum litum regnbogans! Barnastarf kirkjunnar hefst á höfuðborgarsvæðinu og víða um land sunnudaginn 3. september. Sjá nánar á barnatrú.is og á Facebook-síðu Barnastarfs kirkjunnar.
Mest lesið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira