Hræðilegir dagar í Partylandi Partyland 26. október 2026 09:35 „Hér er alls konar hræðilegt skraut og svo auðvitað búningaúrvalið okkar, sem hefur aldrei verið meira,“ segir Kamilla Birta, sölu- og markaðsstjóri Partylands. Verslun Partylands í Holtagörðum er komin í hrekkjavökugírinn og úrvalið hefur aldrei verið
meira
Hrekkjavakan er á næsta leyti og óhætt að segja að Partyland í Holtagörðum sé komið í hátíðarbúning, en þar úði og grúði af hinum ýmsu kynjaskepnum, lífs og liðnum, þegar blaðamann bar að garði. „Þetta er alger hápunktur á árinu hjá okkur og verslunin er troðfull af vörum. Miklu meira en í fyrra. Hér er alls konar hræðilegt skraut og svo auðvitað búningaúrvalið okkar, sem hefur aldrei verið meira,“ segir Kamilla Birta, sölu- og markaðsstjóri Partylands. „Hér geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, hæfilega blöndu af því sem er hræðilegt og skemmtilegt fyrir börn og fullorðna.“ Þetta er þriðja hrekkjavakan frá stofnun Partylands og segir Kamilla úrvalið aukast ár frá ári. Hrekkjavakan virðist nefnilega stækka á Íslandi með hverju árinu. Kamilla segir þá breytingu hafa orðið undanfarin ár að fullorðnir taki nú þátt, ekki síður en börnin, og skreyti hús sín hátt og lágt og klæði sig í búninga. Þetta er alger hápunktur á árinu hjá okkur og verslunin er troðfull af vörum. „Við verðum vör við mikla eftirspurn eftir hrekkjavökuskrauti og það er algengt að nágrannar eigi í vinsamlegri samkeppni um hver eigi hræðilegasta húsið það árið. Fólk leggur auðvitað sérstaka áherslu á útirýmin en er farið að skreyta inni líka í auknum mæli. Við erum með nýja frábæra birgja í hrekkjavökuskrautinu í ár sem munu vekja mikla hrifningu.“ Tímabilið lengist Hrekkjavakan snýst ekki lengur einungis um hrekkjavökudaginn sjálfan, heldur eru vinnustaðir, félagsmiðstöðvar, skólar og vinahópar í auknum mæli farnir að halda fögnuði með hrekkjavökuþema. „Þetta er orðinn fastur punktur á árinu sem er farinn að teygja sig nokkrar vikur kringum hátíðina sjálfa. Hrekkjavökutímabilið er því alltaf að lengjast, sem er auðvitað skemmtilegt, og það er meira að segja orðið algengt að barnaafmæli í október séu með hrekkjavökuþema og allir í búningum.“ Kamilla segir það mjög jákvætt að tímabilið lengist. „Hrekkjavakan hittir á okkur Íslendinga um það leyti þegar myrkrið og skammdegið skella á okkur, þannig að allt sem brýtur upp hversdaginn, lýsir upp umhverfið og gerir okkur dagamun er bara af hinu góða myndi ég segja.“ Gleymum ekki landsbyggðinni Partyland er með öfluga netverslun en þar má nálgast allt það úrval sem verslunin hefur upp á að bjóða, og áherslan er eðlilega sérstaklega á hrekkjavökuna þessa dagana. Hér ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Ímyndunaraflið er eina hindrunin. „Við erum auðvitað bara með verslun í Reykjavík, en við vildum gjarnan ná til allra landsmanna með sem einföldustum hætti. Vefverslunin er því sjálfsögð þjónusta við landsbyggðina og því hefur fólk úti á landi aðgang að öllu okkar úrvali. Svo er vefverslunin líka þægileg lausn fyrir þau sem búa í Reykjavík og nágrenni og kjósa að fá vörurnar sendar heim í sófa. Við erum snögg að afgreiða og sendum vörurnar heim að dyrum með Dropp,“ segir Kamilla. Ímyndunaraflið er eina hindrunin Sjálf ætlar Kamilla að vera uppblásanlegur Chucky úr samnefndri hryllingsmynd frá níunda áratugnum. Hún segir úrvalið af búningum í Partylandi nánast endalaust og að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Þá eru ótaldir allir aukahlutirnir en fá má gerviblóð í lítravís, vígtennur, hársprey, litaðar linsur, hárkollur af öllum gerðum og svo mætti áfram telja. „Hér ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Ímyndunaraflið er eina hindrunin og hægt að nýta sér mátunarklefana hjá okkur til að finna rétta hrekkjavökugervið.” Það verður mikið að gera í Partylandi fyrir hrekkjavökuna og á fimmtudag og föstudag verður opið til kl. 21. Á hrekkjavökudaginn sjálfan, 31. október, opnar verslunin klukkan 10. „Þetta er skemmtilegasti tími ársins hjá okkur og starfsfólkið tekur virkan þátt. Það er því aldrei að vita hvaða kynjaskepnum viðskiptavinirnir mæta á göngunum. En hafið ekki áhyggjur, við bítum ekki, að minnsta kosti ekki fast." Skoðaðu úrvalið á vef Partylands og á Instagram.
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið 50+: Að hætta að vera þjónustumiðstöð fullorðinna barna Áskorun Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Fleiri fréttir Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Sjá meira