Lífið samstarf

Nat­han fagnaði tíma­mótum með stærsta við­burði í sögu fé­lagsins

Nathan
Um 700 mættu í glæsilegan fögnuð hjá Nathan 8. október þar sem viðskiptavinum, samstarfsaðilum og öðrum gestum var boðið að kynnast starfsemi félagsins, vörumerkjum og framtíðarsýn. Frá vinstri eru Anna H. Johannesen, mannauðsstjóri Nathan, Jón Mikael Jónasson, forstjóri Nathan, Hildur Soffía Vignisdóttir, markaðsstjóri Nathan og Ari Fenger,  stjórnarformaður Nathan.

Um 700 gestir skráðu sig á viðburð Nathan sem fram fór í höfuðstöðvum félagsins fimmtudaginn 8. október þar sem viðskiptavinum, samstarfsaðilum og öðrum gestum var boðið að kynnast starfsemi félagsins, vörumerkjum og framtíðarsýn.

Mæting var afar góð og markaði viðburðurinn upphaf nýs kafla í vegferð félagsins eftir umfangsmikla sameiningu og endurmörkun á síðasta ári.

Viðburðurinn var haldinn tæpu ári eftir að sameining 1912, Ekrunnar og Nathan & Olsen undir merkjum Nathan átti sér stað. Frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að því að sameina starfsemina undir einu vörumerki og skapa sterkari heild fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila félagsins.

Gestir fengu tækifæri til að fara á milli fjölbreyttra stöðva víðs vegar um húsnæðið þar sem kynnt voru þau fjölmörgu vörumerki og vöruflokkar sem Nathan flytur inn, markaðssetur og dreifir. Tilgangur viðburðarins var að sýna breidd fyrirtækisins og þá þekkingu, reynslu og þjónustu sem býr að baki starfseminni.

Viðburðurinn markaði jafnframt tímamót í þróun Nathan. Eftir sameiningu og endurmörkun síðasta árs beinist áherslan nú að nýjum tækifærum og áframhaldandi sókn. Nathan vinnur markvisst að því að þróa vöruframboð sitt, bæta við nýjum vöruflokkum og finna leiðir til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. Með sterkum grunni og breiðu vöruframboði er markmiðið að dýpka samstarf við viðskiptavini og stækka saman á komandi árum.

Stemningin var afar góð eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×

Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.