Skildi börnin eftir heima með byssu og fór í frí Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. október 2017 16:00 Macke var handtekin á fimmtudag er hún sneri heim úr fríinu en hún hafði flogið til Þýskalands til að heimsækja ættingja sína. Vísir/Getty
Lögregla í Iowa-ríki í Bandaríkjunum hefur handtekið hina þrítugu Erin Lee Macke en hún er sökuð um að hafa stofnað lífi barna sinna fjögurra í hættu er hún fór í frí til Þýskalands og skildi þau eftir ein heima. Washington Post greinir frá. Macke var handtekin á fimmtudag er hún sneri heim úr fríinu en hún hafði flogið til Þýskalands til að heimsækja ættingja sína. Hún skildi börn sín fjögur, 6 og 7 ára dætur og 12 ára tvíbura, ein eftir heima. Hún skildi einnig eftir byssu á hillu í herbergi sínu sem börnin höfðu aðgang að.Iowa mom Erin Lee Macke left her 4 children home alone 2 take trip 2 Germany #chilabuse #parenting https://t.co/aO61pE7nDG pic.twitter.com/YPFZb1Fl6z— Tara Dodrill (@Tara_Dodrill) September 29, 2017 Fyrrverandi eiginmaður Macke var miður sín vegna málsins. „Ég vildi að ég gæti sagt að þetta hefði komið mér á óvart, en ég er ekki undrandi,“ var haft eftir honum í viðtali við Inside Edition. Macke ætlaði að verja ellefu dögum í Þýskalandi en stytti ferðina um fjóra daga í kjölfar afskipta lögreglu. Börn hennar voru þó ekki ein heima nema í 24 klukkustundir en lögreglu í höfuðborg Iowa, Des Moines, þar sem Macke er búsett barst fljótlega ábending um stöðu málsins. Macke var handtekin við heimkomu og hefur verið ákærð fyrir að stofna lífi barna sinna í hættu og að veita ungmenni aðgang að vopni.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira