Orri Freyr fór í aðgerð og spilar ekki meira á þessu ári Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. október 2017 19:27 Orri Freyr Gíslason er lykilmaður hjá Val. vísir/eyþór
Orri Freyr Gíslason, línu- og varnarmaður Íslands- og bikarmeistara Vals í Olís-deild karla í handbolta, fór í aðgerð á þumalfingri á laugardaginn og spilar ekki meira á þessu ári. Þetta er mikið áfall fyrir Valsliðið enda Orri einn albesti varnarmaður deildarinnar og lykilmaður hjá Val. „Ég hitti lækni á fimmtudaginn og hann sagði mér að liðbandið í þumlinum væri orðið svo skaddað að ég fór beint í aðgerð. Hann skar þetta upp og saumaði liðbandið,“ segir Orri Freyr við Vísi. Hann verður í gifsi í sex vikur og svo kemur í ljós hvað gerist eftir þann tíma. „Ég er búinn fram að áramótum. Nú fer ég bara inn í persónulegt þriggja mánaða undirbúningstímabil. Lífið leikur alveg við mig,“ segir Orri Freyr léttur. Línumaðurinn grjótharði meiddist í Evrópuleikjunum gegn Ungverjunum fyrir nokkrum vikum og hefur verið að spila meiddur fyrir Valsliðið sem tapaði sínum fyrsta leik um síðustu helgi þegar að það steinlá gegn FH. Orri var besti maður Vals og skoraði fimm mörk úr fimm skotum. „Ég er búinn að vera að væla og væla en enginn trúði mér. Ég vældi svo mikið að ég fékk að hitta þennan sérfræðing sem sendi mig beint í aðgerð. Það var gott að fá staðfestingu á þessu þannig ég var nú ekki bara að væla eitthvað. Það er leiðinlegt að væla,“ segir Orri Freyr Gíslason. Valur er í öðru sæti Olís-deildarinnar með ellefu stig, stigi á eftir FH sem á leik til góða.
Olís-deild karla Mest lesið „Skil ekki hvernig má kýla einhvern í andlitið?“ Íslenski boltinn Bjargaði lífi mótherja í miðjum leik Fótbolti LeBron boðar aðra Ákvörðun Körfubolti Hafa fengið áttatíu prósent stiga í boði með Gunnar í byrjunarliðinu Íslenski boltinn „Þeir skutu úr einhverjum fjörutíu vítum“ Körfubolti Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Handbolti „Mér finnst hún skipta sér af málum sem koma henni ekki við“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - Tindastóll 85-87 | Basile með sigurkörfu Körfubolti Opnaði sig um skilnaðinn og erfiða tíma Sport Dagskráin í dag: Stórleikur að Hlíðarenda Sport Fleiri fréttir Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Ómar Ingi frábær með Magdeburg í naumum sigri Haukar og Fram með mikilvæga sigra Tíu íslensk mörk í góðum sigri toppliðsins „Það var smá stress og drama“ Afturelding áfram með fullt hús stiga Markaflóð á Akureyri Viktor Gísli og félagar í Barcelona heimsmeistarar félagsliða Tíu íslensk mörk þegar Magdeburg tók bronsið Valur vann stigalausu Stjörnuna Sandra með stórleik í sigri gegn Selfossi Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Elín Klara markahæst hjá toppliðinu Íslendingaliðið í undanúrslit Tilfinningaþrungin stund eftir hörmungar síðustu ára Haukur með flestar stoðsendingar í Þýskalandi Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni Sjá meira