Ósongatið hefur ekki verið minna í tæp þrjátíu ár Kjartan Kjartansson skrifar 3. nóvember 2017 13:47 Gatið í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu eins og það leit út árið 1992. Vísir/AFP
Gatið í ósonlagi jarðarinnar er að skreppa saman og hefur ekki verið minna frá árinu 1988. Engu að síður var gatið um 19,6 milljón ferkílómetrar að stærð þegar það náði árlegu hámarki sínu í september. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA segir að gatið hafi minnkað um 3,3 milljónir ferkílómetra á milli ára. Vísindamenn hennar rekja það til óvenjumikilla hlýinda í heiðhvolfinu frá 2016. Hlýrra loft hægir á tapi ósons í lofthjúpnum af völdum mengandi klórflúorkolefna, að því er segir í frétt Washington Post. Þrjátíu ár eru nú liðin frá því að ríki heims náðu saman um Montreal-sáttmálann til að takmarka losun efna sem eyða ósonlaginu. Þá hafði gat í ósonlaginu myndast, aðallega yfir Suðurskautslandinu. Óson ver líf á jörðinni fyrir skaðlegum útfjólubláum geislum sólar. Þrátt fyrir árangurinn sem hefur náðst í stöðva stækkun gatsins eru klórflúorkolefni lífseig í lofthjúpnum. Vísindamenn telja að ósonlagið nái ekki fyrri styrk fyrr en í kringum 2070.
Vísindi Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Fleiri fréttir Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Sjá meira