Telja lögreglumenn á vettvangi hafa brugðist rétt við Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 19. nóvember 2017 21:07 Lögregla hefur skoðað málsatvik ítarlega. Vísir/Eyþór
Lögreglan lítur svo á að lögreglumenn sem höfðu afskipti af stúlku í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt laugardags hafði brugðist rétt við. Dyravörður á skemmtistað í Reykjavík taldi grun leika á um að henni hafði verið byrlað ólyfjan en taldi lögregluna hafa sýnt af sér sinnuleysi gagnvart stúlkunni. Hrafnkell Ívarsson, skrifaði færslu á Facebook, þar sem hann lýsti samskiptum sínum við lögreglu. Sagðist hann hafa hringt í Neyðarlínuna vegna stúlku í mjög annarlegu ástandi. Hrafnkell, sem starfað hefur sem dyravörður í sex ár, taldi ljóst að eitthvað annað en mikil ölvun væri valdur af hegðun hennar. „Eftir að hafa útskýrt málið fyrir lögreglukonunum sem sátu frammi í bílnum mætti mér ekkert annað en yfirlæti,“ skrifaði Hrafnkell sem gagnrýndi lögreglukonurnar fyrir að hafa ekki stigið úr lögreglubílnum til þess að leggja mat á ástand konunnar. Í yfirlýsingu vegna málsins frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglan taki slíkar ábendingar alvarlega og að málsatvik hafi verið skoðuð ítarlega. „[B]æði var kallað eftir skýringum lögreglumanna á vettvangi og farið yfir myndefni úr eftirlitsmyndavélum á svæðinu,“ segir í yfirlýsingunni. Þar segir einni að lögregla hafi í tvígang haft tal af stúlkunni og boðið fram aðstoð sína. Stúlkan hafi hins vegar ekki kært sig um aðstoð lögreglu og haldið að lokum sína leið fótgangandi úr miðbænum ásamt vinkonu. „Embættið lítur svo á að lögreglumenn á vettvangi hafi brugðist rétt við, en hafa skal hugfast að í tilvikum sem þessum er gjarnan haft áfram auga með viðkomandi, þ.e. með aðstoð eftirlitsmyndavéla,“ segir í yfirlýsingunni. Er dyraverðinum þakkað fyrir að vekja athygli á málinu, það sýni að fólk sé á varðbergi og standi ekki sama. Þá harmar lögrega að upplifun hans af samskiptum við lögreglumenn á vettvangi hafi ekki verið betri.
Tengdar fréttir Gagnrýnir viðbrögð lögreglu vegna gruns um eiturbyrlun Dyravörður á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur gagnrýnir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu fyrir viðbrögð lögreglumanna eftir að tilkynnt var um að grunur léki á að stúlku hefði verið byrlað ólyfjan á skemmtistað í nótt. 19. nóvember 2017 17:00 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira
Gagnrýnir viðbrögð lögreglu vegna gruns um eiturbyrlun Dyravörður á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur gagnrýnir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu fyrir viðbrögð lögreglumanna eftir að tilkynnt var um að grunur léki á að stúlku hefði verið byrlað ólyfjan á skemmtistað í nótt. 19. nóvember 2017 17:00