Verktakar í vandræðum vegna ökuhraðans í Norðfjarðagöngunum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. nóvember 2017 12:15 Göngin þykja mikil samgöngubót.
Verktakar sem nú leggja lokahönd á vinnu við hin nýju Norðfjarðargöng eru í vandræðum í göngunum vegna mikils umferðarhraða sem þar er. Göngin voru opnuð fyrir umferð á laugardaginn. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar þar sem segir að næstu daga verði unnið við að steypa gólf í neyðarrýmum í göngunum. „Hraðinn í göngunum gífurlegur. Alverstir eru flutningabílarnir. Þeir keyra flestir því miður á útslættinum fram hjá strákunum,“ er haft eftir fulltrúa verktaka á veg Vegagerðarinnar. Vonast Vegagerðin til þess að ökuhraði minnki svo ekki komi til þess að loka þurfi göngunum tímabundið á meðan verktakar klára síðustu handbrögðin. „Við viljum höfða til skynsemi manna um að aka hægar þar sem unnið er. Við vildum ekki fresta opnun ganganna þó að vissum um þessa vinnu, vitandi um einhverja erfiðleika. En á móti þurfum við umburðarlyndi bílstjóra þó að þeir þurfi að fara aðeins hægar. Göngin flýta mjög ferð vöruflutningabíla þó að þeir slái aðeins af. Ef hraðinn minnkar ekki erum við neyddir til þess að huga að tímabundnum lokunum til að vernda starfsmenn, en ég vona að ekki komi til þess.“ Norðfjarðargöng leysa af hólmi Oddskarðsgöng og erfiðan fjallveg. Lengd nýju Norðfjarðarganganna í bergi er 7.566 metrar, vegskáli er 120 metrar Eskifjarðarmeginn og 222 metrar Norðfjarðarmegin eða samtals 342 metrar.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira