Vinstri græn samþykkja stjórnarsáttmálann með miklum meirihluta Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. nóvember 2017 21:39 Katrín Jakobsdóttir kynnti stjórnarsáttmálann fyrir flokksmönnum. Vísir/Stefán
Flokksráð Vinstri grænna samþykkti ríkisstjórnarsáttmála VG, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem borinn var upp á fundi ráðsins í kvöld. Fátt er því nú til fyrirstöðu að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur taki við völdum á morgun. 93 greiddu atkvæði, 75 sögðu já, 15 sögðu nei og 3 seðlar voru auðir. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, og Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður VG, kynntu sáttmálann fyrir viðstöddum á fundi flokksráðsins sem fór fram á Grand Hótel í Reykjavík í kvöld. Á fundinum kom fram að Katrín Jakobsdóttir yrði forsætisráðherra, auk þess sem að flokkurinn fengi heilbrigðisráðuneytið, umhverfisráðuneytið og forseta Alþingis í sinn hlut. Þá mun ríkisstjórnin stefna á að setja sér siðareglur og að opna alla reikninga ríkisins. Að því er kom fram í kynningu Katrínar og Svandísar er inntak stjórnarsáttmálans það að efla innviði til þess að auka samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavísu. Meðal þess sem kemur fram í sáttmálanum er að ríkisstórn flokkanna þriggja stefnir á gera betur en ákvæði Parísarsamningsins í loftslagsmálum segja til um auk þess sem að aðgerðaráætlun um úrbætur í meðferð kynferðisbrota verði framfylgt og fjármögnuð að fullu svo dæmi séu tekin. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld sáu Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmenn flokksins, sér ekki fært að styðja sáttmálann og er staða þeirra innan þingflokksins óviss. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hefur þegar samþykkt sáttmálann og ekki er búist við öðru en að miðstjórn Framsóknarflokksins geri slíkt hið sama en sá fundur stendur enn yfir. Á morgun funda svo þingflokkarnir þrír en stefnt er að því að hin nýja ríkistjórn taki formlega við völdum á morgun.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira