Svo er hneykslast á Katrínu Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 21. nóvember 2017 07:00 Svo virðist sem pólitískar samæfingar þessi misserin hafi gengið fram af ýmsum. Rétt eins og tilveru þeirra hafi verið snúið á haus þegar vinstri og hægri fóru að ylja áform sín undir sömu sæng. En ég var viðbúinn þessu þar sem ég sit löngum stundum á bókasafninu í bænum Alcalá la Real og hef oftast fyrir framan mig sagnfræðing mikinn sem les allan daginn í aldagömlum skjölum um sögu fyrrnefnds bæjar. Hann minnir mig mjög á Þórberg Þórðarson nema hvað að áru hans fannst mér umleika velsæmi mikið og háttvísi. Hann er fínn í tauinu, í jakkafötum og oft með slaufu. Hann handleikur fornar skræðurnar eins og heilaskurðlæknir. Orðfæri hans er svo fram úr máta hátíðlegt að hann þérar mig í bak og fyrir og ávarpar mig sem herra þó erindið sé ekki annað en að biðja mig um að draga gluggatjöldin fyrir. Hins vegar brá svo við um daginn að hann skellti upp úr einsog sauðdrukkinn Vestfirðingur á þorrablóti og lamdi í borðið. Spurði ég hvað vekti kátínu hans og þá tókst honum að kreista upp úr sér: „Hér á 16. öld þegar plágan fór um sveitir ákváðu yfirvöld hér í Alcalá að loka borgarmúrnum og banna alla umferð inn í bæinn. Hins vegar vildi svo til að hóruhúsið var fyrir utan múrana en þá tóku þeir ákvörðun um að flytja starfsemina inn í bæinn.“ Svo margendurtók hann gamalt orðatiltæki sem er svo klúrt að það er ekki hafandi eftir í virðulegu dagblaði en það átti að sanna mannanna girnd. Ég brást feiminn við enda fólk farið að glápa á okkur og viðstaddir velsæmispésar byrjaðir að engjast af siðferðispínu út af þessum óvænta viðsnúningi. Svo er fólk að hneykslast á Katrínu. Höfundur er pistlahöfundur Fréttablaðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Jón Sigurður Eyjólfsson Skoðun Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun