Hamsik sló markamet Maradona Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. desember 2017 18:00 Marek Hamsik vísir/getty Tuttugu og sex ára gamalt markamet Diego Maradona var slegið í gærkvöld þegar Napólí bar sigurorð af Sampdoria. Maradona skoraði 115 mörk fyrir Napólí á árunum 1984-1991 og var leikjahæstur í sögu félagsins. Slóvakinn Marek Hamsik skoraði sigurmark Napólí í leiknum á 39. mínútu og gerði þar með 116. mark sitt fyrir félagið og bætti met Maradona. Hamsik hefur spilað með Napólí frá árinu 2007, svo Maradona getur í það minnsta huggað sig við það hann skoraði þessi mörk á færri árum en Hamsik. Argentínumaðurinn þurfti einnig mun færri leiki til, hann skoraði mörkin 115 í 259 leikjum, en Hamsik þurfti 465 leiki. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti