Fótbolti

Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu

Derek McInnes knattspyrnustjóri Hearts er sannfærður um að Heart of Midlothian muni „eiga sérstakan endi á tímabilinu“. Hann sagði einnig frá því að Eyjamaðurinn í liðinu ætli ekki að láta kinnbeinsbrot halda sér frá vellinum.

Fótbolti

Messi kominn í 900 mörk

Lionel Messi hefur nú á 21 ári sem fótboltamaður náð að skora akkúrat 900 mörk, eftir að hann skoraði fyrir Inter Miami gegn Nashville í Meistaradeild Mið- og Norður-Ameríku í gær.

Fótbolti

Sögu­legur samningur Víkinga

Víkingur opinberaði í dag samstarf við netverslunina Boozt um samstarf til fjögurra ára. Boozt prýðir nýja treyju liðsins og er fyrsta erlenda fyrirtækið, sem ekki er með starfsstöð hér á landi, sem styrkir íslenskt félagslið með þeim hætti. Samningurinn er sá stærsti í sögu Víkings.

Íslenski boltinn

Deilan leyst og spilað í Boston

Náðst hefur niðurstaða milli deilandi aðila sem koma að leikjum á HM karla í fótbolta í Foxborough í nánd við Boston. Síðustu vikur hefur óvissa ríkt um leiki þar á bæ vegna deilna um greiðslur.

Fótbolti

Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar

Arnar Gunnlaugsson segir komandi æfingaleiki gegn Kanada og Haítí vera mikilvæga fyrir íslenska landsliðið, sem undirbýr sig fyrir átökin í haust í C-deild Þjóðadeildarinnar. Þá hjálpi það helling að Ísland sé mjög vinsælt þegar önnur lið eru í leit að vináttuleikjum.

Fótbolti

„Við hefðum getað unnið 10-0“

Hugo Ekitike skoraði annað mark Liverpool í 4-0 sigri á Galatasaray í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld en markið átti mestan þátt í að brjóta niður tyrkneska liðið.

Fótbolti