Fleiri skulda í íbúð sinni en í nágrannalöndunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. mars 2018 07:42 Hlutfallslega flestar íbúðir eru í útleigu í Reykjanesbæ og Akureyri. VÍSIR/STEFÁN
Algengara er að heimili skuldi í íbúð sinni hér á landi en í helstu nágrannalöndum okkar ef marka má nýja mánaðarskýrslu Íbúðarlánasjóðs. Í skýrslunni kemur fram að í nágrannalöndunum er ýmist algengara að heimili séu á leigumarkaði eða eigi íbúð sína skuldlaust heldur en á Íslandi. Þannig bjuggu 63% íslenskra heimila í eigin íbúð með áhvílandi húsnæðisláni árið 2015 en í Evrópusambandinu var hlutfallið um 26%. Um 15 prósent íslenskra heimila áttu íbúð sína skuldlaust árið 2015, en í Evrópusambandinu var þetta hlutfall þrefalt hærra, eða um 43%. Meðal annars efnis í skýrslunni eru niðurstöður sem benda til þess að ásett verð íbúða á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. það verð sem kemur fram í auglýsingum, hafi hækkað um 1,0% í janúar. Það er meiri hækkun heldur en mánuðina á undan en þó minni en í bæjarfélögum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þar hækkaði ásett verð íbúða um 2,0% í janúar. Að sama skapi kemur fram í skýrslunni að að íbúðaverð hefur aldrei mælst hærra í hlutfalli við vísitölu neysluverðs en í janúar síðastliðnum. Þá benda þinglýstir leigusamningar til þess að hlutfallslega flestar íbúðir séu í útleigu í Reykjanesbæ og Akureyri. Reykjavík er nálægt landsmeðaltali hvað varðar hlutfall þinglýstra samninga af heildaríbúðafjölda. Í Garðabæ, Hornafirði og Snæfellsbæ er leigumarkaðurinn óvirkastur á þennan mælikvarða.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira