Gronkowski tekur eitt ár í viðbót Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. apríl 2018 14:00 Gronk súr og svekktur eftir tapið í Super Bowl í febrúar. Hann ætlar sér að komast aftur þangað á næsta ári. vísir/getty
Stuðningsmenn New England Patriots anda léttar í dag þar sem innherjinn magnaði, Rob Gronkowski, hefur staðfest að hann ætli sér að spila með liðinu næsta vetur. Gronkowski hefur legið undir feldi síðustu vikur og spáð í því hvort hann ætti að leggja skóna á hilluna þó svo hann sé aðeins 28 ára gamall. Hermt var að hann hefði íhugað það mjög alvarlega. Hann hefur ekki enn hafið æfingar með liðinu en eftir fund með þjálfara liðsins, Bill Belichick, í gær ákvað hann að taka að minnsta kosti eitt ár í viðbót með liðinu. „Ég sagði við þjálfarann að ég yrði með næsta vetur. Ég hef verið að æfa sjálfur, er í flottu formi og líður vel. Ég bíð spenntur eftir því að gera enn eina atlöguna að titlinum,“ skrifaði Gronkowski á Instagram. Gronk hefur tvisvar sinnum orðið meistari með Patriots. Hann hefur fimm sinnum verið valinn í stjörnulið deildarinnar og er almennt talinn vera besti innherji allra tíma í deildinni. Tom Brady hefur ekki enn staðfest að hann spili næsta vetur en þó svo hann sé ekki byrjaður að mæta á æfingar þá býst Patriots ekki við öðru en að hann spili. Tala nú ekki um þar sem Gronk ætlar að vera áfram með.
NFL Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone Sjá meira