Oddvitaáskorunin: Hermdi heimabrugg upp á deildastjóra Fjármálaráðuneytisins Samúel Karl Ólason skrifar 10. maí 2018 15:00 Að bera út stefnurit Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Haraldur Sverrisson leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum. Um þessar mundir á sér stað mikil uppbygging í Mosfellsbæ á öllum sviðum. Fordæmalaus fjölgun varð í bæjarfélaginu á síðasta ári en þá fjölgaði bæjarbúum um 8,2%. Þetta er langmesta fjölgun á höfuðborgarsvæðinu og ein sú mesta á landinu. Mosfellsbær er vinsælt sveitarfélag til búsetu. Í þjónustukönnunum Gallup sem gerðar eru meðal 19 stærstu sveitarfélaganna ár hvert hefur Mosfellsbær ávallt verið í 1. eða 2. sæti á undanförnum árum þegar ánægja íbúanna er mæld. Svona mikil uppbygging kallar á fjárfestingar í innviðum. Eins og byggingu Helgafellsskóla og byggingu knatthúss að Varmá sem dæmi. Um milljarða framkvæmdir er að ræða. Samt hafa álögur á íbúa lækkað í Mosfellsbæ og samt er samanlagður rekstrarafgangur á kjörtímabilinu um 1.040 milljónir. Ábyrgur rekstur gerir það að verkum að svona er hægt að standa að málum hjá Mosfellsbæ. Framtíðin er björt í Mosfellsbæ og með gildi bæjarins VIRÐINGU – JÁKVÆÐNI - FRAMSÆKNI og UMHYGGJU að leiðarljósi eru Mosfellingum allir vegir færir. Við Sjálfstæðisfólk höfum verið við stjórnvölinn í Mosfellsbæ síðan árið 2002. Á þeim tíma hefur þjónusta og rekstur sveitarfélagsins tekið stakkaskiptum. Við ætlum að halda áfram á sömu braut og gera enn betur og sjá til þess að áfram sé best að búa í Mosfellsbæ, fáum við til þess umboð í kosningunum 26. Maí. Áfram Mosfellsbær!Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Gjáin í Þjórsárdal.Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag) Eskifirði.Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Nautalund bernaise.Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda? Allan mat.Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? Veit ekki hvað það er?Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá? Ég reyni alltaf að gleyma vandræðalegum stundum, ef ég fer að segja frá þeim á prenti að þá mun það markmið mistakast og vandræðalegu stundirnar lifa að eilífu í huga mér.Draumaferðalagið? Um Ísland í sumarblíðu.Trúir þú á líf eftir dauðann? Já.Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í? Þegar ég fékk Palla Ben fréttamann til að hringja í deildarstjórann í fjármálaráðuneytinu sem hafði umsjón með áfengis löggjöfinni sem hermdi upp á hann að hann stundaði heimabrugg. Þetta var síðan spilað á árshátíðinni.Hundar eða kettir? Bæði.Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd? Veit ekki hvað þetta er?Hvaða leikari ætti að leika þig í bíómynd? Brad Pitt.Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju? Veit ekkert um Game of thrones.Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni? Já.Uppáhalds tónlistarmaður? Duke Ellington.Uppáhalds bókin? Saga Mosfellsbæjar.Uppáhalds föstudagsdrykkur? Kók eða vatn. Blanda samt kók og vatni aldrei saman.Uppáhalds þynnkumatur? Mér finnst bara alltaf gott að fá mér brauð á morgnanna eða egg og beikon, sama hvað ég var að gera daginn áður.Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning? Menning.Hefur þú pissað í sundlaug? Minnist þess ekki.Hvaða lag kemur þér í gírinn? Eye in the Sky með Alan Parsons Project.Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga? Einbeiti mér að því að hlusta á bæjarbúa og þeirra pirring, en það er ekki hægt að bregðast við öllum pirring.Á að banna flugelda? Nei.Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju? Gylfi Þór Sigurðsson af því að mér finnst gaman að því að skapa.Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is. Tekið verður við efni fram að kosningum.
Kosningar 2018 Oddvitaáskorunin Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Fleiri fréttir Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu