Hundruð saknað í Gvatemala Samúel Karl Ólason skrifar 4. júní 2018 10:34 Ekki er vitað til þess að fleiri hafi dáið í eldgosi í Gvatemala síðan 1912. Vísir/AP
Minnst 25 eru látnir eftir eldgos í Fuego-fjalli í Gvatemala í nótt en hundruð eru særðir og fjölda fólks er saknað. Hundruð viðbragðsaðila eru nú að störfum við að bjarga fólk en þeir hafa enn ekki náð til nokkurra þorpa í hlíðum fjallsins. Búist er við að tala látinna muni hækka þar sem eiturgas, hraun og aska flæddi hratt niður hlíðar fjallsins og gleypti heilu þorpin. Aska úr fjallinu hefur náð minnst sex kílómetra hæð og hefur alþjóðaflugvelli landsins verið lokað. Ekki er vitað til þess að fleiri hafi dáið í eldgosi í Gvatemala síðan 1912 og hefur Jimmy Morales, forseti landsins, lýst yfir þriggja daga sorgartímabili. Samkvæmt Guardian er hann að íhuga að lýsa yfir neyðarástandi.Jarðfræðingar hafa varað við því að jarðhræringum þessum geti fylgt aurskriður. Þetta er annað eldgosið í Fuego, sem þýðir í raun „eldur“, á þessu ári. Árið 1974 var mjög stórt eldgos í fjallinu þar sem hraun flæddi yfir nærliggjandi svæði en enginn lét þó lífið. Þúsundir manna létu lífið árið 1902 þegar eldfjallið Santa Maria gaus. Volcán de Fuego y sus erupciones... pic.twitter.com/6T9TxQ6hOo— Guía espiritual. (@renato_lechuga) June 3, 2018
Gvatemala Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Sjá meira