Sluppu frá fangelsinu í Alcatraz Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 23. júní 2018 22:43 Íslendingarnir Lilja Magnúsdóttir, verkfræðingur, Einar Beinteinn Árnason, eðlisfræðingur og Kristín Steinunnardóttir, verkfræðingur, tóku þátt í keppni þar sem synda þurfti frá klettaeyjunni Alcatraz í San Fransisco flóa að landi. Úr einkasafni/Einar
Þrír Íslendingar sluppu frá hinu alræmda Alcatraz fangelsi í dag eða öllu heldur syntu frá fangelsinu. Íslendingarnir Lilja Magnúsdóttir, verkfræðingur, Einar Beinteinn Árnason, eðlisfræðingur og Kristín Steinunnardóttir, verkfræðingur, tóku þátt í keppni þar sem synda þurfti frá klettaeyjunni Alcatraz í San Francisco flóa að landi. Tvö hundruð tuttugu og átta manns tóku þátt í keppninni. Að sögn Einars er sundið 1,5 mílu langt eða 2,4 KM í 14°C köldum sjó. Hákarlar hafast við í San Francisco flóa en þeir létu sundkappana þó blessunarlega í friði. Einar segist lengi hafa gælt við hugmyndina um sundkeppnina. „Ég hafði horft á myndir eins og The Rock, The Escape from Alcatraz og heimildarmyndir og hafði lengi haft það á bak við eyrað að synda frá fangelsinu eins og margir fangar reyndu. Ég minntist óvart á þessa drauma mína við Lilju vinkonu mína sem er búsett í San Francisco og eftir það var ekki aftur snúið. Við Kristín konan mín keyptum flug út hálftíma seinna og sama dag vorum við öll þrjú skráð í keppnina“ Ekkert þeirra hafði æft sund en þau bjuggu sig undir átökin með því að synda tvisvar í viku í 5-6 vikur fyrir keppnina.
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira