Fimmtán ára stúlka flúði flóttamannamiðstöð Sylvía Hall skrifar 29. júlí 2018 18:54 Stúlkan flúði þegar hún var á leið í augnskoðun. Vísir/Getty
Fimmtán ára gömul stúlka faldi sig á bifreiðaverkstæði eftir að hún flúði flóttamannamiðstöð í Flórída. Stúlkan lagði á flótta þegar starfsmenn miðstöðvarinnar ætluðu með hana í augnskoðun. Atvikið átti sér stað fyrir utan heilsugæslu á föstudag, en þegar stúlkan steig út úr bílnum hljóp hún frá starfsmönnum. Lögregla hóf leit að stúlkunni og starfsmaður verkstæðisins gerði lögreglumönnum viðvart um stúlkuna, sem faldi sig á bak við verkfærakassa. Eigandi verkstæðisins sagði í samtali við Washington Post að stúlkan hafði hlaupið grátandi inn á verkstæðið, falið sig út í horni og verið þar grátandi í rúman klukkutíma. Hún sagðist ekki vita hvar foreldrar sínir væru og það hafi verið augljóst að hún væri mjög hrædd. Hann segist hafa fundið til með stúlkunni, en hafi verið knúinn til þess að gera lögreglu viðvart þar sem hún væri öruggari í þeirra höndum frekar en ein og allslaus á götum borgarinnar. Hann tekur þó fram að ákvörðunin hafi ekki verið auðveld. Flóttamannamiðstöðin þar sem stúlkan dvelur hýsir yfir þúsund börn sem eru á aldrinum þrettán til sautján ára. Sum þeirra voru aðskilin frá foreldrum sínum við landamærin og dvelja þau þar að meðaltali í 25 daga. Stúlkan var færð aftur í miðstöðina þegar hún fannst.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira