Maðurinn sem var stunginn í hálsinn sagður úr lífshættu Birgir Olgeirsson skrifar 23. júlí 2018 14:11 Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum árásarmanni síðar í dag. Vísir/GVA
Maðurinn sem var stunginn í hálsinn á Akranesi í gærkvöldi er ekki lengur í lífshættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi sem segir að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manninum sem er grunaður um árásina síðar í dag. Mennirnir tveir eru báðir búsettir á þeim stað sem atvikið átti sér stað. Lögreglunni barst tilkynning rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi frá Sjúkrahúsinu á Akranesi vegna manns sem hafði leitað þangað og lét ófriðlega. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maðurinn á bak og burt. Á meðan lögreglumenn voru enn á vettvangi barst svo önnur tilkynning frá manni sem búsettur er nærri sjúkrahúsinu. Bað sá um aðstoð lögreglu þar sem verið væri að ráðast á hann. Við þetta bættist svo þriðja tilkynningin um að maður hefði verið stunginn með hnífi þarna. Sjúkraflutningamenn á Akranesi ásamt lögreglu fóru á vettvang. Í ljós kom að að maður hafði verið stunginn í hálsinn með hníf og var hann fluttur með hraði á Sjúkrahúsið á Akranesi og eftir aðhlynningu þar og undirbúning var hann fluttur til Reykjavíkur á Landspítala. Sá sem fyrir stungunni varð, var sá hinn sami og látið hafði ófriðlega á sjúkrahúsinu skömmu áður.
Tengdar fréttir Maður í lífshættu eftir hnífsstungu á Akranesi Karlmaður var hætt kominn eftir að annar karlmaður stakk hann með hnífi í heimahúsi á Akranesi í nótt. 23. júlí 2018 12:00 Mest lesið Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira
Maður í lífshættu eftir hnífsstungu á Akranesi Karlmaður var hætt kominn eftir að annar karlmaður stakk hann með hnífi í heimahúsi á Akranesi í nótt. 23. júlí 2018 12:00