Nawaz Sharif sleppt úr fangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 19. september 2018 11:44 Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan. AP/Anjum Naveed
Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, verður sleppt úr fangelsi einungis tveimur mánuðum eftir að hann byrjaði að afplána tíu ára fangelsisdóm fyrir spillingu. Þetta er niðurstaða áfrýjunardómstóls í Pakistan en Sharif var dæmdur fyrir spillingu í tengslum við fjórar lúxusíbúðir sem hann og fjölskylda hans á í London. Dóttir hans og tengdasonur voru einnig dæmd í fangelsi, hún í sjö ár og hann eitt, og verður þeim sömuleiðis sleppt. Þeim verður þó einungis sleppt tímabundið og þá gegn tryggingu en Hæstiréttur Pakistan á enn eftiri að taka málið fyrir og liggur ekki fyrir hvenær það verður. Sharif hefur ávalt neitað sök og hefur sagt ásakanirnar gegn sér byggja á pólitík. Áfrýjunardómstóllinn sagði saksóknurum ekki hafa tekist að sanna að Sharif ætti áðurnefndar íbúðir. Stuðningsmenn Sharif segja að pólitískir andstæðingar hans og þá sérstaklega herinn hafi séð til þess að hann hafi verið sakfelldur. Hins vegar hefur Imran Khan, nýr forsætisráðherra Pakistan lofað sakfellinguna sem sigur gegn spillingu í ríkinu.
Pakistan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira