HK og ÍA tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni Anton Ingi Leifsson skrifar 15. september 2018 15:51 Brynjar skoraði eitt marka HK í dag. vísir/ernir
HK og ÍA tryggðu sér í dag sæti í Pepsi-deild karla eftir sigra í leikjum sínum í Inkasso-deild karla í kvöld. Næst síðasta umferðin fór fram í dag. HK lenti í engum vandræðum með ÍR í Kórnum í kvöld. Birkir Valur Jónsson, Brynjar Jónasson og Ingibergur Ólafur Jónsson skoruðu mörki í 3-0 sigri HK. HK hefur einungis tapað einum leik í sumar og er á toppi deildarinnar með 41 stig. HK lék síðast í efstu deild karla árið 2008 svo biðin hefur verið löng. ÍR er með átján stig í tíunda sætinu, Magni er í ellefta sæti með 16 stig og Selfoss í neðsta sæti með fimmtán. ÍR og Magni mætast í úrslitaleik í lokaumferðinni um sæti í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð. ÍA er einnig komið í deild þeirra bestu eftir 3-1 sigur á Selfossi. Jeppe Hansen og Arnar Már Guðjónsson komu ÍA í 2-0 áður en Guðmundur Axel Hilmarsson minnkaði muninn. Í uppbótartíma innsigldi svo Þórður Þórðarson sigurinn. Kenan Turudija og Hrvoje Tokic fengu rauð spjöld í liði Selfyssinga rétt áður en Guðmundur Axel minnkaði muninn í 2-1. Selfyssingar eru á botni deildarinnar með 15 stig og eru fallnir fyrir lokaumferðina. Jóhannes Karl Guðjónsson stýrir því uppeldisfélaginu upp í efstu deild á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari en ÍA féll úr Pepsi-deildinni 2017 svo þeir stoppuðu stutt við í Inkasso. Magni vann lífsnauðsynlegan sigur á Fram á heimavelli, 2-1, en með sigrinum heldur Magni sér á lífi í botnbaráttunni. Sigurmarkið skoraði Lars Óli Jessen eftir klukkutíma leik. Víkingur Ólafsvík tapaði 2-1 á heimavelli fyrir Njarðvík, Þór vann 4-2 sigur á Víking og Leiknir og Haukar gerðu markalaust jafntefli í Breiðholtinu.Úrslit dagsins: Þróttur - Þór 2-4 Víkingur Ó. - Njarðvík 1-2 HK - ÍR 3-0 Selfoss - ÍA 1-3 Leiknir - Haukar 0-0 Magni - Fram 2-1 Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá Fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira