Liverpool græddi tvöfalt meira en United á Meistaradeildinni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. október 2018 23:30 Brot Sergio Ramos á Mohamed Salah var einn helsti umræðupunktur eftir úrslitaleikinn í vor vísir/getty
Liverpool þénaði mest af ensku liðunum á Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili en Manchester United minnst. Liverpool fór alla leið í úrslitaleikinn og fékk fyrir það 77 milljónir punda, þar af 25 milljónir punda í sjónvarpstekjur. Enska liðið var þó ekki það sem þénaði næst mest. Roma, sem datt út fyrir Liverpool í undanúrslitunum, þénaði næst mest á keppninni síðasta tímabil. Nágrannarnir og erkifjendurnir í Manchester United fengu meira en helmingi minni tekjur en Liverpool. United fékk 35 milljónir punda í heildina og aðeins tæpar 12 milljónir af því voru sjónvarpstekjur þrátt fyrir að hafa komist í 16-liða úrslit. Manchester-liðið fékk hins vegar hærri frammistöðugreiðslu heldur en Liverpool, lærisveinar Jose Mourinho fengu 7,21 milljónir en Liverpool 5,6 milljónir punda. Hæstu frammistöðugreiðsluna fékk Tottenham, 7,65 milljónir punda. Paris Saint-Germain og Bayern München fengu svipaða upphæð og United. Af ensku liðunum fékk Chelsea hæstu sjónvarpstekjurnar, þeir bláklæddu fengu tæpar 36 milljónir. Chelsea þénaði næst mest af ensku liðunum í heildina, 57 milljónir. Manchester City þénaði 56 milljónir punda í heildina og Tottenham 54. Meistararnir Real Madrid þénuðu mest af öllum, 78 milljónir. Samtals greiðslur UEFA til félaganna í keppninni voru yfir milljarð punda.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira