Higuain skúrkurinn gegn sínum gömlu félögum er Juventus vann risaslaginn Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 11. nóvember 2018 21:30 Higuain klúðraði víti og fékk rautt gegn sínum gömlu félögum vísir/getty Juventus fór með sigur af hólmi gegn AC Milan í stórleik helgarinnar í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-0. Ítölsku meistararnir byrjuðu af krafti og komust yfir strax á áttundu mínútu leiksins en markið skoraði Króatinn Mario Mandzukic. AC Milan fékk gullið tækifæri til þess að jafna leikinn undir lok fyrri hálfleiks þegar þeir fengu vítaspyrnu. Gonzalo Higuain steig á punktinn gegn sínum gömlu félögum en brást bogalistinn. Cristiano Ronaldo innsiglaði svo sigur Juventus með marki á 81. mínútu en skömmu síðar fékk Higuain að líta á rauða spjaldið. Ekki góður dagur hjá Higuain gegn sínum gömlu félögum. Juventus er komið með myndarlega forystu á toppi deildarinnar, en þeir eru með sex stiga forystu á Napoli sem er í 2. sæti. Milan situr í fimmta sæti, með 21 stig. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn