Myrti kærasta sinn og eldaði úr honum máltíð handa verkamönnum Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. nóvember 2018 14:41 Konan framreiddi líkamsleifar kærasta síns með hrísgrjónum. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Getty/WhiteLacePhotography
Marokkósk kona búsett í Sameinuðu arabísku furstadæmunum er sökuð um að hafa myrt kærasta sinn, bútað hann niður og eldað máltíð úr kjötinu sem hún bauð síðar verkamönnum í grennd við heimili sitt. Í frétt BBC um málið er haft eftir saksóknurum að konan, sem er á fertugsaldri, hafi myrt kærastann fyrir þremur mánuðum. Hún hafi þó ekki orðið uppvís að morðinu fyrr en nú á dögunum, eftir að tönn úr manninum fannst í blandara í hennar eigu. Í frétt ríkisrekna dagblaðsins The National segir að konan hafi játað sök í málinu og borið fyrir sig „sturlun“. Þá hefur BBC einnig upp úr dagblaðinu að konan hafi verið í sambandi með manninum í sjö ár. Þegar hann tjáði henni að hann hygðist giftast annarri konu hafi hún ákveðið að myrða hann. Ekki hefur komið fram hvernig maðurinn var myrtur. Konan er þó sögð hafa búið til kjötrétt úr líkamsleifum mannsins og framreitt ásamt hrísgrjónum. Konan lagði sér réttinn ekki til munns sjálf heldur bauð hún pakistönskum verkamönnum, sem voru við störf í grennd við heimili hennar, upp á hann.
Afríka Mið-Austurlönd Mest lesið Lögreglan innsiglaði Flóka Innlent Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Erlent Tveir reyndir lögreglumenn ákærðir fyrir brot í starfi Innlent „Við vorum komin með súrefniskúta heim“ Innlent Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Erlent Handtekin fyrir að leka myndbandi af misþyrmingu á fanga Erlent Málar myndir með vinstri hendi eftir heilablóðfall Innlent Snúin staða Sönnu og sameiginlegt framboð virðist ekki í kortunum Innlent Miðflokkurinn nálgast Sjálfstæðisflokkinn óðfluga Innlent Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Fleiri fréttir Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Handtekin fyrir að leka myndbandi af misþyrmingu á fanga Myndar stjórn með fjarhægriflokkum Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Að minnsta kosti 20 látnir eftir stóran skjálfta í Afganistan Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Níu í lífshættu eftir stunguárásina Margir sagðir særðir eftir árás í Cambridge-skíri Segir hernum að undirbúa árás á Nígeríu Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Sjá meira