Stuðningsyfirlýsingar til Báru hrannast upp á Facebook Jakob Bjarnar skrifar 7. desember 2018 10:15 Stuðningsyfirlýsingar og þakklætiskveðjur staflast upp á Facebook þar sem Báru Halldórsdóttur er þakkað það kærlega að hafa tekið upp tal þingmannanna sem nú eru kenndir við Klaustur.
Hamingju- og þakklætiskveðjum rignir yfir Báru Halldórsdóttur í kjölfar viðtals við hana þar sem hún stígur fram sem uppljóstrarinn Marvin. Hún tók upp samræðurnar á Klausturbar þann 20. nóvember á sex ára gamlan, brotinn Samsung Galaxy A5-síma sinn og hafa upptökurnar þær snúið þjóðfélaginu algerlega á hvolf í því sem kallast Klaustur-mál. Þeir fyrstu til að ríða á vaðið undir myllumerkinu TakkBára er fólk úr verkalýðshreyfingunni. Þau telja Báru sannkallaða hetju og leggja til að hún verði kjörin maður ársins.Veruleikinn ótrúlegur, merkilegur og fallegur Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist beinlínis klökk, svo mikið finnst henni til þessa afreks Báru koma. „Aljörlega mögnuð manneskja og aðgerðarsinni; hefur tekið þátt í starfi Pepp, samtaka fólks í fátækt og Tabú, femínískrar hreyfingar fatlaðra kvenna,“ skrifar Sólveig Anna á Facebooksíðu sína. Og hún heldur áfram að lýsa upplifun sinni af þessum gerningi Báru: „Ég viðurkenni að ég er pínku klökk. Stundum er veruleikinn svo ótrúlegur, merkilegur og fallegur,“ skrifar Sólveig Anna og vitnar í viðtalið.Forsíða nýjasta tölublaðs Stundarinnar, þar sem Bára Halldórsdóttir stígur fram sem uppljóstrarinn sem gengið hefur undir dulnefninu Marvin.„Það eru tvær þjóðir í þessu landi. Þjóðin sem rétt skrimtir, fólk sem neyðist til að vera eins konar felubetlarar“ Og: „Sumir hæðast að góða fólkinu en viljum við ekki einmitt vera gott fólk? Þegar öllu er á borninn hvolft, viljum við ekki þá vera góðar manneskjur? Búa til samfélag þar sem fólki líður vel, þarf ekki að óttast hatur og fyrirlitningu valdamikilla manna og getur ræktað hæfileika sína án þess að rekast á vegg?“ Sólveig Anna segir við þessum tillvitnunum sem hún tekur til: „Jú, kæra Bára, það er akkúrat og nákvæmlega það sem við viljum.“Þú ert æði Ýmsir úr vinstri hreyfingunni hafa svo fylgt í kjölfarið, og lýst yfir þakklæti sínu og aðdáun á Báru. Einn þeirra er Atli Þór Fanndal eða Thor Fanndal, blaðamaður og ráðgjafi:Þau sem sátu að sumbli á Klaustri 20. nóvember. Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveinsson, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir. Þau hugsa nú væntanlega Báru þegjandi þörfina.„Þú ert æði,“ skrifar Thor og vitnar í viðtalið: „Sumir hafa kallað mig Marvin. En ég heiti bara Bára Halldórsdóttir og er 42 ára öryrki,“ segir hún. „Ég á son, hund, tvo ketti og konu. Ég sinni fræðslu og réttindabaráttu fyrir langveika og öryrkja eftir því sem ég get, aðallega í gegnum samfélagsmiðla,“ segir Bára Halldórsdóttir.“ Rannveig Tenchi Pírati er líka hrifin: „Takk fyrir að ýta á upptöku! Hefði líklega gert það sama! Nú stöndum við líka öll vörð um Báru,“ segir Rannveig og lætur hjarta-merki fylgja skilaboðum sínum. Hún ætlar að ekki séu allir jafn ánægðir með þetta upptökuna.Bára maður ársins Fjölmargir eru á því að Bára hljóti að teljast maður ársins. Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Eflingar segir Báru manneskju ársins. Ingunn Snædal skáld og þýðandi segir: „Töffari ársins. Hugrökk og skelegg og flott í Stundinni“. Ingimar Karl Helgason upplýsingafulltrúi Öryrkjabandalagsins segir einfaldlega: „Hetja“. Og Ragnheiður Haralds og Eiríksdóttir blaðamaður og kynlífsfræðingur segir „Takk Bára. Þú ert kona ársins,“ og telur hana eiga skilið að fá Fálkaorðuna. Stöðugt bætast í sarpinn stuðingskveðjur til Báru Halldórsdóttur bæði á Facebook og Twitter. En, á sama hátt og Bára nýtur nú aðdáunar liggur fyrir að ýmsir telja það fyrir neðan allar hellur að hún hafi legið á hleri og hafa tjáð þá skoðun sína. Og víst er að sexmenningarnir sem höfðu uppi hin umdeildu orð sem Bára tók upp og aðrir sem þeim tengjast hugsa henni þegjandi þörfina.'Ef að Davíð Oddsson er ósáttur við eitthvað sem ég hef gert þá hlýt ég að vera á réttri leið. "-Marvin aka Bára Halldórsdóttirmjög gott viðmið— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) December 7, 2018
Samfélagsmiðlar Upptökur á Klaustur bar Tengdar fréttir Marvin heitir Bára Hin 42 ára gamla Bára Halldórsdóttir trúði ekki sínum eigin eyrum þegar hún settist niður með kaffibolla á Klaustri þann 20. nóvember síðastliðinn. 7. desember 2018 07:00 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Marvin heitir Bára Hin 42 ára gamla Bára Halldórsdóttir trúði ekki sínum eigin eyrum þegar hún settist niður með kaffibolla á Klaustri þann 20. nóvember síðastliðinn. 7. desember 2018 07:00