Áfram suðlæg átt og óvenjulega milt miðað við árstíma Atli Ísleifsson skrifar 4. janúar 2019 08:12 Rigning verður um landið sunnan og vestanvert í dag. vísir/vilhelm
Áfram verður suðlæg átt og rigning um landið sunnan og vestanvert í dag. Spáð er átta til fimmtán metrum á sekúndu, en hvassast um miðbik Norðurlands, tíu til átján metra. Á vef Veðurstofunnar segir að áfram verði óvenjumilt í veðri miðað við árstíma og verður hitinn á bilinu fjögur til tólf stig, hlýjast norðantil. Á morgun eru hins vegar blikur á lofti þar sem útlit er fyrir að snúist í allhvassa vestlæga átt seinni partinn með kólnandi veðri og éljum eða snjókomu V-lands. „Á sunnudaginn heldur éljagangurinn áfram í fyrstu en útlit er fyrir að dragi úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn og seint um kvöldið snýst líklega í austlæga átt.“Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ sunnudag: Allhvöss eða hvöss suðvestanátt og él, hvassast NV-til, en þurrt á austanverðu landinu. Hægari síðdegis, en snýst í vaxandi austanátt um kvöldið með slyddu, fyrst sunnantil. Hiti um og yfir frostmarki. Á mánudag: Allhvöss eða hvöss norðlæg átt með slyddu eða snjókomu, en hægari og úrkomulítið vestantil. Dregur úr vindi og ofankomu þegar líður á daginn. Kólnandi veður. Á þriðjudag: Hæg breytileg átt, bjart að mestu og frost um allt land. Vaxandi sunnanátt þegar líður á daginn, þykknar upp og hlýnar, fyrst vestantil á landinu. Á miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir stífa suðvestanátt með rigningu um landið vestanvert, en þurrt eystra. Fremur hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Sjá meira