Sigmundi heitt í hamsi eftir spurningar Smára: „Hvers konar endemis della er þetta?“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 26. febrúar 2019 18:11 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Smári McCarthy tókust á á Alþingi í dag. Vísir/Vilhelm/Hanna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, virtist ekki vera hrifinn af spurningum Smára McCarthy, þingmanns Pírata, um hagsmuni hins fyrrnefnda í tengslum við aflandskrónueigendur og vogunarsjóði á Alþingi nú síðdegis.Umræða stendur nú yfir á Alþingium frumvarp fjármálaráðherra um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál. Seðlabankinn hefur hvatt til þess að frumvarpið verði samþykkt í tæka tíð áður en gjalddagi á tiltekins flokks ríkisbréfa rennur upp, sem er í dag. Benti Seðlabankinn á að yrði frumvarpið ekki samþykkt fyrir þann tíma myndi hættan aukast á því að stórir aflandskrónueigendur muni leiti út með fjármagn sitt í stað þess að endurfjárfesta í íslenskum skuldabréfum. Það geti haft í för með sér slæmar afleiðingar fyrir efnahaginn.Það virðist hafa verið af þessu tilefni sem Smára þótti rétt að spyrja Sigmund Davíð af hverju svo virtist sem að Miðflokkurinn væri kominn í málþóf til þess að tefja framgang frumvarpsins, en þingmenn Miðflokksins eru nær þeir einu sem eru á mælendaskrá.„Mig langar til þess að spyrja háttvirtan þingmann hvort hann hafi nú, eins og hann hafði hér fyrir nokkrum árum eins og alþjóð veit, persónulega hagsmuni sem tengjast meðferð þessa þingmáls. Og ef svo er ekki þá langar mig að spyrja, í þágu hvaða markmiða eða hvaða hagsmunaðila það er sem Miðflokkurinn er nú að reyna að tefja framgöngu þessa máls,“ spurði Smári Sigmund Davíð.Vísaði Smári þar til aflandsfélagsins Wintris sem var í eigu Sigmundar Davíðs þegar það lýsti kröfum í stóru bankanna þriggja sem féllu í Hruninu.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður MiðflokksinsVísir/VilhelmSagði tímabært að siðanefnd skoðaði framgöngu Pírata á þingi Sigmundur virtist ekki vera hrifinn af spurningu Smára og svaraði henni um hæl. „Því virðast fá takmörk sett hversu framganga Pírata getur orðið ógeðfelld á þessu Alþingi. Ég held að það sé orðið löngu tímabært að siðanefnd fari aðeins að fjalla um Pírata og hvernig þeir starfa, ekki bara eineltiskúlturinn innan þeirra raða heldur framgöngu þeirra við aðra þingmenn,“ sagði Sigmundur Davíð. Viðraði hann einnig efasemdir sínar um að samþykki frumvarpsins myndi gera það að verkum að stórir aflandskrónueigendur myndi endurfjárfesta í íslenskum skuldabréfum. Töluverðar líkur væru á því að aflandskrónueigendurnir myndu leita út. „Og ég hef sannarlega engra hagsmuna að gæta hjá vogunarsjóðum eins og háttvirtar þingmaður á að geta gert sér grein fyrir. En ég ítreka, mér finnst framganga Pírata undanfarnar vikur, mánuði og reyndar kannski dálítið mörg ár vera fyrir neðan allar hellur,“ svaraði Sigmundur Davíð. Ekkert óeðlilegt við að spyrja að mati Smára Smári virtist þó ekki vera sáttur við þetta svar formanns Miðflokksins og steig aftur í pontu. „Það er eðlilegt og ekki eineltistilburðir að spyrja þegar þekkt er að þingmenn hafi einhver tengsl eða hafi haft einhver tengsl í fortíðinni við ákveðin mál að spyrja hvort að þau tengsl séu enn til staðar.“ „Við þekkjum öll að þessi áhætta er til þá er eðlilegt að spyrja, úr því að Miðflokkurinn er kominn í þennan málþófsgír, fyrir hvern, hver græðir? „Cui Bono?“ eins og stundum er sagt með leyfi forseta. Vegna þess að ég sé það ekki í hendi mér til hvers þessi málþófsgír er í gangi og satt að segja væri eðlilegast að við myndum klára þetta mál og svo myndum við taka nokkur önnur góð mál fyrir,“ bætti hann við. AlþingiVísir/VilhelmSakaði Smára um meiðyrði Aftur steig Sigmundur Davíð í pontu og virtist hann allt annað en kátur með framgöngu þingmanns Pírata í málinu. „Þingmaður sem talar hér á undan mér gerðist sekur um meiðyrði. Hann laug og lagði sig fram við það að reyna að stimpla inn ógeðfellda mynd sem hann því miður og allt of margir félagar hans hafa á undanförnum árum reynt að viðhalda og koma inn hjá fólki. Ég hef aldrei haft nein tengsl við neina hrægammasjóði og það hafa engir ættingjar mínir gert heldur,“ sagði Sigmundur Davíð. Taldi hann framgöngu Smára „vera fyrir neðan allar hellur“ „Fyrir utan það að kenning hans er svo arfavitlaus að búa til samsæriskenningu um að það að koma í veg fyrir að harðskeyttustu vogunarsjóðirnir séu losaðir úr höftum einhliða af hálfu ríkisins að með því móti sé á einhvern hátt verið að ganga gegn hagsmunum ríkisins. Hvers konar endemis della er þetta og hversu lengi eigum við að þola meira af þessu frá þingmönnum Pírata?“
Alþingi Gjaldeyrishöft Miðflokkurinn Píratar Mest lesið „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira