Seinni bylgjan: Í þessum leik var hann bara út um allt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2019 15:00 Kristján Örn Kristjánsson kom með beinum hætti að þrettán mörkum Eyjaliðsins á Hlíðarenda. Vísir/Bára
Eyjamenn unnu frábæran sigur á Íslandsmeistaraefnunum á Hlíðarenda og fengu líka mikið hrós í umfjöllun Seinni bylgjunnar um leikinn. Erlingur Birgir Richardsson og Kristinn Guðmundsson þjálfa ÍBV-liðið saman en oftar ekki er það Kristinn sem tekur að sér fjölmiðlaviðtölin. Erlingur var hins vegar mættur í viðtal eftir sigurinn á Valsmönnum og fékk smá skot á sig hjá mönnum í Seinni bylgjunni. „Það má ekki gera Kidda það að hans andlit stimplist alltaf á tapleiki því þá verður erfitt fyrir hann meðal Eyjafólksins. Það minnar það þá alltaf á tapleiki þegar það sér andlitið hans. Svo kemur Erlingur alltaf þegar það er sigurleikur,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson í léttum tón. Kristján Örn Kristjánsson er á sínu fyrsta tímabili í Eyjum og átti einn sinn allra besta leik í sigrinum á Val. Hann skoraði átta mörk og átti fimm stoðsendingar í leiknum sem skilaði honum 8,4 í einkunn hjá HB Statz. „Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Hann var þetta Fjölnislið í fyrra en hefur átt frekar erfitt uppdráttar í Eyjum í vetur. Hann hefur átti leiki hér og leiki þar en þetta var eins góður Donni og hann verður,“ sagði Tómas Þór Þórðarson. „Þetta var besta frammistaða hans í vetur eða eins og maður segir: Fjölnisframmistaða,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson. „Hann er samt að gera allt annað en með Fjölni þegar enginn gat skotið nema hann. Það tók tíma fyrir hann að komast inn í þetta. Hann er með geðveikt stökk og geðveikt skot. Það hefur vantað eitthvað sjálfstraust í hann en í þessum leik var hann bara út um allt,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson. Það má finna alla umfjöllun Seinni bylgjunnar um Kristján Örn Kristjánsson og Eyjaliðið hér fyrir neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Frammistaða Eyjamanna í sigrinum á Val
Olís-deild karla Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Íslenski boltinn Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira