Bikarkeppnin ber aftur nafn mjólkurinnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. mars 2019 16:49 Frá undirskriftinni í dag. Frá vinstri eru Sonný Lára Þráinsdóttir, fyrirliði ríkjandi bikarmeistara Breiðabliks, Ari Edwald, forstjóri MS, Guðni Bergsson, formaður KSÍ, Stefán Sigurðsson, forstjóri Sýnar og Baldur Sigurðsson, fyrirliði bikarmeistara Stjörnunnar. Vísir/Vilhelm
Fulltrúar Mjólkursamsölunnar og Sýnar hf. skrifuðu í dag undir nýjan eins árs samning um að bikarkeppnir karla og kvenna í heiti Mjólkurbikarinn. Samningurinn var undirritaður í dag í höfuðstöðvum KSÍ af fulltrúum MS og Sýnar hf., sem meðal annars rekur Stöð 2 Sport og Vísi. Bikarkeppnin hét þessu nafni frá 1986 til 1996 en Mjólkurbikarinn sneri svo aftur síðastliðið sumar við góðar undirtektir. „Við vorum mjög ánægð með að endurvekja Mjólkurbikarinn í fyrra og fengum mjög góð viðbrögð á það. Keppnin var þar að auki mjög skemmtileg og fór vel fram,“ sagði Ari Edwald, forstjóri MS, í dag. „Við vorum spennt að taka þátt í þessu aftur.“ Ari segir að það sé mikilvægt í augum MS að lið úr öllum landshornum taki þátt í bikarkeppninni. „Svo viljum við vekja athygli á því að mjólk er einhver besti íþróttadrykkur sem hægt er að fá. En þess fyrir utan er það góð kynning að halda mjólkinni á lofti í tengslum við keppnina sem fékk mjög góða og jákvæða athygli.“ Mjólkurbikar karla hefst 10. apríl með viðureign Kára og Hamars í Akraneshöllinni en fyrstu tvær umferðirnar fara fram í apríl. Um mánaðamótin fara svo 32-liða úrslitin fram en þá koma lið úr Pepsi Max-deild karla til sögunnar. Í kvennaflokki hefst Mjólkurbikarinn þann 3. maí með þremur leikjum. Liðin tíu úr Pepsi Max-deild kvenna hefja svo þátttöku í 16-liða úrslitum sem hefjast 31. maí.
Mjólkurbikarinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Báðir þurfa bikar Enski boltinn „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Enski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Fleiri fréttir „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Sjá meira