Slá fyrst, tyrfa svo Davíð Þorláksson skrifar 24. apríl 2019 07:00 Til þess að halda óbreyttum lífsgæðum þurfum við Íslendingar að auka útflutningsverðmæti okkar um einn milljarð á viku næstu tuttugu árin. Það er ljóst að stærstu útflutningsgreinar okkar, ferðaþjónusta, sjávarútvegur og stóriðja, búa allar við náttúrulegar takmarkanir hvað varðar vöxt. Við höfum bara ákveðið bolmagn til að taka við fleiri ferðamönnum, það eru bara ákveðið margir fiskar í sjónum og ákveðið mikil orka sem eftir er að virkja. Það eru vissulega tækifæri til vaxtar og aukinnar hagkvæmni í öllum þessum greinum en sá vöxtur verður líklega aldrei jafn ævintýralegur og hann hefur t.d. verið í ferðaþjónustu síðustu ár. Það blasir því við að við þurfum að fjölga undirstöðunum undir útflutningi okkar með nýsköpun. Meðal þeirra atvinnugreina sem lofa hvað bestu er laxeldi í sjó. Aðstæður hér virðast góðar, þetta hefur gengið vel í nágrannalöndum og spáð er miklum vexti í þessari grein í framtíðinni. Þessa grein þarf þó auðvitað að byggja upp í góðri sátt við náttúruna. Greininni fylgir fjöldi vel launaðra starfa í byggðarlögum fjarri Reykjavík þar sem skortur er á slíku. Sjókvíaeldi er að slíta barnsskónum og er nú í uppbyggingarfasa sem mun þarfnast mikillar fjárfestingar næstu árin. Það er því enn ekki farið að skila hagnaði en hefur mikla möguleika til þess. Það skýtur því ansi skökku við að ríkisstjórnin leggi nú til að sérstök gjaldtaka af því verði hækkuð. Það er svolítið eins og að ætla að slá blettinn fyrst og tyrfa hann svo. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Davíð Þorláksson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun