Stones fékk 2,96 í einkunn en Van Dijk valinn sá besti Anton Ingi Leifsson skrifar 7. júní 2019 08:00 Niðurlútur Stones. vísir/getty
Holland er komið í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar eftir 3-1 sigur á Englandi eftir framlengdan leik í Guimares í Portúgal í gærkvöldi. England komst yfir í leiknum með marki frá Marcus Rashford úr vítaspyrnu en Matthijs de Ligt jafnaði með hörkuskalla á 73. mínútu. Því þurfti að framlengja en Kyle Walker skoraði sjálfsmark á 97. mínútu og Quince Promes innsiglaði sigur Hollendinga á 114. mínútu. Lokatölur 3-1. John Stones, miðvörður Manchester City og enska landsliðsins, átti ekki sinn besta leik í gærkvöldi og gerði meðal annars hörmuleg mistök í öðru marki Hollendinga er hann missti boltann sem aftasti maður. BBC var ekki hrifið af Stones en hann var langneðsti leikmaður BBC í einkunnagjöf frá því í leiknum í gær. Hann fékk einungis 2,96 fyrir frammistöðu sína. Besti leikmaður Englands var valinn Everton-maðurinn og markvörðurinn, Jordan Pickford, en hann var með 6,06 í einkunn. Sá leikmaður á vellinum sem fékk hæstu einkunn var Virgil van Dijk með 6,91. Holland mætir Portúgal í úrslitaleiknum á sunnudaginn á meðan England spilar við Sviss um bronsið.
Þjóðadeild UEFA Tengdar fréttir Hollendingar í úrslit eftir framlengingu Hollendingar mæta Portúgal í úrslitum Þjóðadeildar UEFA eftir sigur á Englendingum í framlengdum leik í undanúrslitunum. 6. júní 2019 21:30 Southgate: Þegar þú ert þreyttur gerir þú mistök Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, sagði gærkvöldið hafa verið ótrúlegt kvöld þrátt fyrir tap Englands fyrir Hollandi í undanúrslitum Þjóðadeildar UEFA. 7. júní 2019 06:00 Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Fleiri fréttir Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Man. City - West Ham | Bláklæddir geta tyllt sér á toppinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Sjá meira
Hollendingar í úrslit eftir framlengingu Hollendingar mæta Portúgal í úrslitum Þjóðadeildar UEFA eftir sigur á Englendingum í framlengdum leik í undanúrslitunum. 6. júní 2019 21:30
Southgate: Þegar þú ert þreyttur gerir þú mistök Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, sagði gærkvöldið hafa verið ótrúlegt kvöld þrátt fyrir tap Englands fyrir Hollandi í undanúrslitum Þjóðadeildar UEFA. 7. júní 2019 06:00