Hetja Hollendinga meiddist í fagnaðarlátunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júní 2019 15:30 Lieke Martens fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum. Getty/Molly Darlington
Lieke Martens tryggði hollenska landsliðinu sæti í átta liða úrslitum á HM kvenna í fótbolta en gæti nú misst af leiknum. Martens skoraði bæði mörk Hollands í 2-1 sigri á Japan þar af sigurmarkið úr vítaspyrnu undir lokin. Lieke Martens fagnaði sigurmarki sínu vel en kannski of mikið því hún meiddist í fagnaðarlátunum. Jill Roord, liðsfélagi Lieke Martens, hoppaði óvart ofan á fót Martens í fagnaðarlátunum og það mátti sjá strax að hún meiddi hana. Nú er komið í ljós að það eru talsverðir eftirmálar af þessu atviki. Lieke Martens var ekki með á æfingu hollenska landsliðsins í dag og hefur því enn ekki æft með liðinu eftir leikinn. Reuters segir frá. Martens er sjálf viss um að hún geti spilað með á móti Ítalíu á morgun en það lítur ekki vel út eftir að hún missti af föstudagsæfingunni. Lieke Martens hefur oft verið meira áberandi en á þessu heimsmeistaramóti. Hún minnti hins vegar á sig með þessum tveimur mörkum á móti Japan. Martens var kosin besti leikmaður Evrópukeppninnar 2017 þegar hollenska landsliðið fagnaði sigri. Hún var kosin besta knattspyrnukona heims seinna það ár. Lieke Martens er 26 ára leikmaður Barcelona og hjálpaði liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vetur. Martens hefur skorað 44 mörk í 107 landsleikjum.Getty/Eric Verhoeven
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira