Haraldur annar og Axel þriðji í Svíþjóð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2019 14:56 Axel og Haraldur gerðu góða hluti í Svíþjóð. vísir/andri marinó
Íslenskir kylfingar enduðu í 2. og 3. sæti á Camfil Nordic Championship mótinu í golfi sem fór fram í Svíþjóð. Mótið er hluti af Nordic Golf mótaröðinni. Haraldur Franklín Magnús lenti í 2. sæti á ellefu höggum undir pari. Hann var tveimur höggum á eftir sigurvegaranum, Christopher Sahlström frá Svíþjóð. Axel Bóasson varð þriðji á tíu höggum undir pari. Haraldur lék á einu höggi undir pari á þriðja hringnum í dag. Sahlström lék hins vegar á fimm höggum undir pari og fór upp fyrir Harald sem jafnaði þó sinn besta árangur á Nordic Golf mótaröðinni í ár með því að lenda í 2. sætinu. Axel lék á þremur höggum undir pari í dag. Hann var jafn Sander Aadusaar frá Eistlandi í 3. sætinu. Þetta er besti árangur Axels á Nordic Golf mótaröðinni í ár. Andri Þór Björnsson endaði í 46. sæti á fjórum höggum yfir pari. Haraldur er í 7. sæti á stigalista mótaraðarinnar en Axel í 26. sætinu. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er þriðji á eftir áðurnefndum Sahlström og landa hans, Fredrik Niléhn.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira