Atvinnuhvalveiðar Japana hafnar Kjartan Kjartansson skrifar 1. júlí 2019 11:32 Japanskir hvalveiðimenn landa hrefnu í Kushiro í dag. Vísir/EPA
Japönsk hvalveiðiskip eru komin til hafnar með fyrstu hvalina sem veiddir eru í atvinnuskyni í landinu í áratugi. Japönsk yfirvöld gáfu út veiðileyfi fyrir 227 hvali á þessu tímabili, um hundrað dýrum færra en fyrir vísindaveiðar þeirra í fyrra. Veiðarnar sem nú eru hafnar eru í trássi við bann Alþjóðahvalveiðiráðsins. Japanir sögðu sig úr ráðinu og virðir ekki reglur þess. Uppsögnin tók gildi í dag. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 1987 sem Japanir veiða hval í atvinnuskyni en undanfarin ár hafa þeir stundað það sem þeir hafa nefnt vísindaveiðar á hval.Breska ríkisútvarpið BBC segir að japönsku skipin hafi leyfi til að veiða 52 hrefnur, 25 sandreyðar og 150 skorureyðar [e. Bryde's whale]. Kvótinn fyrir vísindaveiðarnar í fyrra var 333 dýr. Hrefna og skorureyður eru ekki taldir í útrýmingarhættu á lista Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN). Sandreyður er talinn í útrýmingarhættu en stofninn er þó talinn fara stækkandi. Náttúruverndarsamtök eins og Grænfriðingar og Sea Sheperd mótmæla hvalveiðum Japana en þau hafi enn sem komið er ekki boðað sérstakar aðgerðir gegn þeim. Hvalveiðar eru lítill iðnaður í Japan og er áætlað að um þrjú hundruð manns hafi af þeim atvinnu. Japanir hafa haldið því fram að hvalveiðar og át sé hluti af menningu landsins. Japönsk yfirvöld hafa sagt að veiðarnar nú fari fram innan efnahagslögsögu landsins en ekki í Suður-Íshafinu eins og vísindaveiðarnar.
Hvalveiðar Japan Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira