Ryanair gæti rekið hundruð flugmanna og þjóna Kjartan Kjartansson skrifar 31. júlí 2019 16:22 Ryanair hafði pantað 28 Boeing 737 Max-vélar áður en þær voru kyrrsettar. Tafir verða á afhendingu þeirra og því þarf félagið að fækka ferðum næsta sumar. AP/Martin Meissner
Allt að níu hundruð flugmenn og flugþjónar írska lágfargjaldaflugfélagsins Ryanair gætu fengið reisupassann í hópuppsögn í lok sumars, að sögn Michaels O‘Leary, forstjóra félagsins. Fækkun flugferða næsta sumars vegna kyrrsetningar Boeing 737 Max-farþegaþotanna segir hann ástæðu uppsagnanna. O‘Leary tilkynnti starfsmönnum Ryanair þetta í myndbandi. Tilkynnt yrði um uppsagnir í lok ágúst en hann nefndi ekki hversu margir kæmu til með að missa vinnuna, aðeins að félagið hefði um 900 flugmönnum og þjónum of mörgum á launaskrá, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Auk vandræðagangs Boeing nefndi O‘Leary minni hagnað, hækkandi olíuverð og óvissu um útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Ryanair tilkynnti um fimmtungssamdrátt í hagnaði á öðrum ársfjórðungi á mánudag.
Boeing Fréttir af flugi Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira