Pétur Halldórsson er Framúrskarandi ungur Íslendingur 2019 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. september 2019 13:30 Fanney Þórisdóttir, landsforseti JCI, Pétur Halldórsson og Guðni Th. Mynd/JCI
Pétur Halldórsson líffræðingur hlaut í gær titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2019. Guðni Th. forseti Íslands afhenti verðlaunin í Iðnó ásamt Söru Mansour, aktívista og baráttukonu og Rakel Garðarsdóttur hjá Vakandi. Það eru samtökin JCI á Íslandi sem veita verðlaunin á hverju ári en Pétur var tilnefndur fyrir störf á sviði siðferðis- og/eða umhverfismála. „Þetta var alveg ljómandi. Þetta er mikill heiður og einnig mikil hvatning að fá svona viðurkenningu,“ segir Pétur í samtali við Vísi. „Hápunkturinn var að hitta svona stóran hóp af flottu fólki.“ Eftir að óskað hafði verið eftir tilnefningum til verðlaunanna í ár fengu tíu einstaklingar viðurkenninguna framúrskarandi ungir Íslendingar en meira en 200 tilnefningar bárust frá almenningi. Það var dómnefnd sem valdi Pétur sem Framúrskarandi ungur Íslendingur 2019 en einnig voru verðlaunuð í gær þau Alda Karen Hjaltalín, Anna Sigríður Islind, Einar Stefánsson, Erna Kristín Stefánsdóttir, Ragnheiður Þorgrímsdóttir, Róbert Ísak Jónsson, Sigurður Loftur Thorlacius, Sólborg Guðbrandsdóttir og Sturlaugur Haraldsson.Pétur Halldórsson hélt ræðu á verðlaununum í gær.Aðsend myndStofna ný alþjóðleg samtök Pétur er formaður Ungra umhverfissinna og er ötull talsmaður náttúruverndar og valdeflingar ungs fólks. Lokaverkefni hans í líffræði var rannsókn á íslenska himbrimastofninum en engin haldbær gögn voru til um íslenska stofninn. Pétur er í stjórn Landverndar og er mikill talsmaður þess að samrýma loftslagsaðgerðir og endurheimt vistkerfa. Hann hefur meðal annars gagnrýnt opinberlega ákveðið stefnuleysi í orkumálum þjóðarinnar. „Við í félaginu Ungir umhverfissinnar höfum við ekki aðeins verið að tala fyrir náttúruvernd heldur höfum við líka verið í að standa fyrir fleiru eins og loftlagsverkföllunum. Við höfum verið í nýsköpun að búa til námskeið í hagsmunagæslu fyrir sjálfbæra þróun og ég hef svona átt frumkvæði af því.“ Síðustu tvö ár hefur Pétur tekið þátt í því að stofna ný alþjóðleg félagasamtök, hins alþjóðlega tengslanets ungmenna um Norðurslóðir, Arctic Youth Network. Vinnan af því hófst eftir fund með hóp frá Alaska á Hringborði norðurslóða í Hörpu, haustið 2017. „Þar erum við að tengja saman ungt fólk og höfum svolítið verið að leggja áherslu á hvernig loftslagsmál, náttúruvernd og menningarlegt jafnrétti tengjast innbyrðis,“ útskýrir Pétur. „Við erum nú þegar komin með hundrað einstaklinga í um það bil 30 löndum sem eru búin að skuldbinda tímann sinn í verkefnið. Svo er komin níu manna stjórn frá Alaska, Kanada, Rússlandi og Póllandi. Hugmyndin er sú að þegar við stofnum þennan vettvang fyrir ungt fólk til að tengjast á þessum forsendum, að þá getum við farið að gera virkilega spennandi verkefni sem að taka á þessari helstu áskorun sem ég held að sé hvernig við vinnum á milli ekki bara landamæra heldur menningarheima.“ Pétur segist ætla að nýta þennan titil til þess að tala áfram fyrir náttúruvernd og valdeflingar ungs fólks.Topp tíu Framúrskarandi ungir Íslendingar. Á myndina vantar Öldu Kareni Hjaltalín sem búsett er erlendis.Ótrúlegt afrek Þetta var í 18. skiptið sem verðlaunin eru afhent en á meðal þeirra sem hafa hlotið þennan titil síðustu ár eru Ingileif Friðriksdóttir fjölmiðlakona, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ævar Þór Benediktsson bókahöfundur, Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona, Emilíana Torrini söngkona, Vilborg Arna Gissurardóttir Everest-fari, Sævar Helgi Bragason stjörnufræðingur, Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og Rakel Garðarsdóttir stofnandi Vakandi, samtaka um aukna vitundarvakningu varðandi sóun matvæla. Fleiri vinningshafa má finna hér. „Pétur er vel að þessum verðlaunum kominn. Hann hefur verið í sjálfboðavinnu í starfi sínu hjá Ungum Umhverfissinnum og nýtt frítíma sinn í baráttu sinni um náttúruvernd og loftslagsmál. Einnig stofnaði hann Arctic youth network, alþjóðlegt tengslanet ungs fólks sem er umhugað um umhverfismál. Ótrúleg afrek hjá þessum unga manni og við hlökkum til að fylgjast með næstu skrefum hjá honum. Framtíðin er björt með alla þessa ungu frambærilegu einstaklinga sem láta sig málefnin varða,“ segir Jón Rúnar Jónsson, verkefnastjóri Framúrskarandi 2019. Dómnefndina í ár skipaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingkona, Rakel Garðarsdóttir hjá Vakandi, Fanney Þórisdóttir landsforseti JCI, Jón Atli rektor Háskóla Íslands og Eyþór K. Einarsson umdæmisstjóri hjá Kiwanis. Verðlaunin eru hluti af alþjóðlegri viðurkenningu sem JCI stendur fyrir um allan heim til að vekja athygli á því sem er vel gert og einnig til að hvetja annað ungt fólk til dáða. Erlendis eru verðlaunin nefnd TOYP verðlaun, The Outstanding Young People of the World, en á meðal verðlaunahafa eru Elvis Presley, Bruce Lee og Bill Clinton.
Umhverfismál Viðtal Tengdar fréttir Topp tíu framúrskarandi ungir Íslendingar 2019 Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 18. skiptið. 28. ágúst 2019 11:00 Óeðlilegt að velta raforkuskorti á almenning Yfirvofandi raforkuskortur er til marks um stefnuleysi í orkumálum Íslendinga að mati formanns Ungra umhverfissinna. 14. júlí 2019 19:45 Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira
Topp tíu framúrskarandi ungir Íslendingar 2019 Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 18. skiptið. 28. ágúst 2019 11:00
Óeðlilegt að velta raforkuskorti á almenning Yfirvofandi raforkuskortur er til marks um stefnuleysi í orkumálum Íslendinga að mati formanns Ungra umhverfissinna. 14. júlí 2019 19:45