Hélt Gylfa stundum fyrir utan liðið hjá Tottenham en er nú á leiðinni frítt til Blackburn Anton Ingi Leifsson skrifar 19. september 2019 12:30 Lewis Holtby er á leið í enska boltann.
Fyrrum miðjumaður Tottenham, Lewis Holtby, er á leiðinni til B-deildarliðsins Blackburn en hann er laus allra mála eftir að hafa yfirgefið Hamburger Sport-Verein í sumar. Holtby er 29 ára gamall miðjumaður sem á enskan faðir en þýska móður. Hann ákvað að framlengja ekki samning sinn í Þýskalandi þar sem hann hafði leikið í nokkur ár en HSV leikur í þýsku B-deildinni. Holtby gat farið til Kína og Tyrklands en langar að fara til Englands og nú gæti hann verið að semja við Blackburn. Hann sást á æfingasvæði félagsins í gær þar sem hann gekk undir læknisskoðun. Hann lék með Tottenham á sama tíma og Gylfi Þór Sigurðsson var á mála þar, eða á árunum 2013 til 2015. Í fjölmörgum leikjum var það Holtby sem fékk frekar tækifærið í byrjunarliðinu en ferlar þeirra hafa farið í sitthvora áttina eftir það. Blackburn er í 12. sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliði deildarinnar Leeds United, en Blackburn endaði í 15. sætinu á síðustu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti Enn skorar Emelía Fótbolti Fleiri fréttir „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Sjá meira