Entist skammt í þjálfarastólnum Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2026 13:33 Defoe er hættur eftir aðeins rúma 100 daga í starfi. Mike Hewitt/Getty Images Jermain Defoe hefur verið sagt upp á miðju undirbúningstímabili sem þjálfara Woking í ensku utandeildinni. Hann var aðeins í starfi í 116 daga.
Defoe tók við liði Woking undir lok síðustu leiktíðar. Hann stýrði liðinu í síðustu sex leikjum leiktíðarinnar í ensku utandeildinni, National League, sem er fimmta efsta deild Englands. Undir hans stjórn vann liðið einn leik, gerði þrjú jafntefli og tapaði tveimur. Hann hóf undirbúningstímabilið sem þjálfari liðsins og það hafði spilað tvo æfingaleiki þegar óvænt var greint frá brotthvarfi hans í gær. Greint var frá því að félagið og Defoe hefði komist að samkomulagi um starfslok hans. Defoe skrifaði færslu á samfélagsmiðla þar sem hann staðfesti tíðindin. „Því miður hafa aðstæður gert það ómögulegt fyrir mig að halda áfram í starfinu. Ég er afar stoltur af því starfi sem ég vann fyrir félagið og fannst við sannarlega vera að byggja upp eitthvað sérstakt,“ segir Defoe en hvað nákvæmlega olli starfslokunum kemur ekki fram. Defoe gerði garðinn frægan með Tottenham.Shaun Botterill/Getty Images Um var að ræða fyrsta þjálfarastarf fyrrverandi framherjans sem átti frábæran feril í ensku úrvalsdeildinni sem leikmaður. Defoe er 43 ára gamall og hefur lagt iðn við þjálfun frá því að skórnir fóru upp í hillu árið 2022. Hann hafði starfað í akademíu Tottenham Hotspur áður en hann tók við Woking í mars. Defoe er tíundi markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar með 162 mörk fyrir West Ham, Tottenham, Portsmouth, Sunderland og Bournemouth. Einnig lék hann fyrir Toronto í Bandaríkjunum og Rangers í Skotlandi á leikmannaferli sínum.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira