Haraldur Franklín færist nær Áskorendamótaröðinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2019 15:03 Haraldur lék samtals á 14 höggum undir pari á Lindbyvätten Masters-mótinu. mynd/gsimyndir.net/seth
Haraldur Franklín Magnús endaði í 2. sæti á Lindbyvätten Masters-mótinu í golfi í Svíþjóð sem lauk í dag. Mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Fyrir árangurinn góða á Lindbyvätten Masters fékk Haraldur 4508 stig og komst upp í 4. sætið á stigalista Nordic Golf-mótaraðarinnar. Fjórða sætið myndi gefa Haraldi þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni á næsta ári. Samherji hans hjá GR, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, er þegar búinn að tryggja sér þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni 2020. Þetta er í fjórða sinn sem Haraldur lendir í 2. sæti á móti á Nordic Golf-mótaröðinni í ár. Hann hefur alls leikið á 20 mótum. Haraldur lék á tveimur höggum undir pari í dag. Hann fékk þrjá fugla og einn skolla á hringnum. Haraldur lauk leik á 14 höggum undir pari. Hann var tveimur höggum á eftir sigurvegaranum Tobias Ruth frá Svíþjóð.
Golf Tengdar fréttir Haraldur í 2. sæti eftir fyrstu tvo hringina í Svíþjóð Haraldur Franklín Magnús er aðeins einu höggi á eftir efsta manni á Lindbytvätten Masters-mótinu í golfi í Svíþjóð. 26. september 2019 17:00 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira
Haraldur í 2. sæti eftir fyrstu tvo hringina í Svíþjóð Haraldur Franklín Magnús er aðeins einu höggi á eftir efsta manni á Lindbytvätten Masters-mótinu í golfi í Svíþjóð. 26. september 2019 17:00