Segir iPhone hafa gert sig samkynhneigðan Samúel Karl Ólason skrifar 4. október 2019 15:25 Lögmaður mannsins segir að Apple verði að bera ábyrgð á forritum þeirra, þó að ljóst sé að skilaboðin sem maðurinn fékk bárust honum í gegnum utanaðkomandi forrit. Vísir/Getty
Rússneskur maður hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu Apple á þeim grundvelli að iPhone hafi gert hann samkynhneigðan. Hann krefst þess að fá milljón rúblur, sem er um 1,8 milljón króna (gróflega reiknað), vegna þess skaða sem hann hefur orðið fyrir.Samkvæmt frétt BBC heldur maðurinn því fram að hann hafi fengið rafmyntina GayCoin í gegnum síma sinn þó hann hafi keypt Bitcoin. Rafmyntinni fylgdu skilaboðin: „Ekki dæma fyrr en þú hefur prófað“. Maðurinn heldur því fram að hann hafi því ákveðið að prófa kynlíf með karlmanni vegna skilaboðanna. Nú eigi hann kærasta og geti ekki útskýrt það fyrir foreldrum sínum. „Líf mitt hefur breyst til hins verra,“ skrifaði hann í kæruna og bætti við að hann yrði aldrei „venjulegur“ aftur. Hann heldur því fram að Apple hafi ýtt honum út í samkynhneigð og þannig valdið honum skaða. Lögmaður mannsins segir að Apple verði að bera ábyrgð á forritum þeirra, þó að ljóst sé að skilaboðin sem maðurinn fékk bárust honum í gegnum utanaðkomandi forrit. Árið 1993 afnámu rússneskir þingmenn lög sem bönnuðu samkynhneigð en fordómar eru þrátt fyrir það umfangsmiklir í Rússlandi. Árið 2013 voru lög samþykkt sem banna dreifingu „áróðurs um samkynhneigð“ sem fól í raun í sér bann við opinberri baráttu fyrir auknum réttindum LGBT fólks. Undanfarin ár hafa nokkrir aðgerðasinnar verið myrtir í Rússlandi.
Apple Rússland Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira