Zlatan hefur viðræður við AC Milan Arnar Geir Halldórsson skrifar 21. nóvember 2019 09:30 Endurkoma í kortunum? vísir/getty
Mino Raiola, umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, hefur hafið viðræður við AC Milan og gæti þessi sænska goðsögn snúið aftur í ítalska boltann þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar. Hinn 38 ára gamli Zlatan er í leit að nýju félagi en hann yfirgaf LA Galaxy á dögunum eftir að hafa skorað 53 mörk í 58 leikjum í MLS deildinni á undanförnum tveimur árum. Zlatan er mikils metinn innan AC Milan en hann skoraði 56 mörk í 85 leikjum fyrir félagið frá 2010-2012 og hjálpaði félaginu að vinna Serie A 2011 en síðan þá hefur þetta stórveldi ekkert unnið og má nú muna sinn fífil fegurri þar sem liðið er í 14.sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Heimildir Sky á Ítalíu herma þó að töluvert langt sé í land í samningaviðræðum milli AC og Zlatan en launakröfur Svíans gætu reynst AC Milan ofviða. Talið er að félagið sé tilbúið að bjóða Zlatan 18 mánaða samning en Ítölunum er sniðinn þröngur stakkur í peningamálum í ljósi þess að vera til að mynda í banni frá Evrópukeppnum eftir að hafa brotið Financial Fair Play reglur. Zlatan hefur einnig verið orðaður við Bologna í ítalska boltanum og eflaust eru mörg áhugaverð félög um allan heim sem renna hýru auga til kappans.
Ítalski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira