Facebook prófar að hjálpa notendum að flytja myndir sínar Samúel Karl Ólason skrifar 2. desember 2019 19:50 Facebook hefur að undanförnu orðið fyrir miklum þrýstingi frá yfirvöldum um allan heim. Meðal þess sem fyrirtækið hefur verið krafið um snýr að því að Facebook slaki takið á gögnum notenda. Myndir eru þar á meðal. Vísir/Getty
Facebook vinnur nú að tilraunum með nýtt tól sem gerir notendum samfélagsmiðla fyrirtækisins að færa myndir sínar til annarra fyrirtækja með auðveldum hætti. Fyrst um sinn munu notendur geta flutt myndir sína á Facebook yfir í Google Photos en það verður ekki mögulegt öllum fyrr en einhvern tímann á fyrri helmingi næsta árs. Enn sem komið er, er þjónustan eingöngu aðgengileg á Írlandi, samkvæmt yfirlýsingu.Facebook hefur að undanförnu orðið fyrir miklum þrýstingi frá yfirvöldum um allan heim. Meðal þess sem fyrirtækið hefur verið krafið um snýr að því að Facebook slaki takið á gögnum notenda. Myndir eru þar á meðal. Fyrirtækið birti skýrslu í september sem fjallar um flutning gagna og persónuvernd. Í inngangi skýrslunnar segir að stjórnmálamenn um heim allan séu á þeirri skoðun að notendur ættu að geta flutt gögn sín frá einni þjónustu til annarrar, þar sem það gæti ýtt undir samkeppni. Hins vegar sé það verulega flókið og nauðsynlegt sé að vernda gögnin.Áðurnefnt tól Facebook er, samkvæmt tilkynningunni, til komið vegna þessara skýrslu. Enn fremur segir í yfirlýsingunni að forsvarsmenn Facebook vonist til þess að með þessari aðgerð geti umræðan um gagnaflutning og persónuvernd haldið áfram. Nauðsynlegt sé þó að semja skýrar reglur um hvers konar gögn eigi að vera hægt að flytja á milli fyrirtækja og hver beri ábyrgð á vernd þeirra gagna.
Facebook Tækni Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira