Ástralar hefja rannsókn á skemmtiferðaskipinu Ruby Princess Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. apríl 2020 11:47 Ruby Princess undan ströndum Sydney. Um 200 áhafnarmeðlimir eru um borð og eru þeir allir með COVID-19. EPA/ JOEL CARRETT
Hafin er rannsókn á því í Ástralíu hvers vegna farþegar skemmtiferðaskipsins Ruby Princess fengu að fara frá borði í Sydney þrátt fyrir að hafa sýnt flensueinkenni. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins. Meira en 600 manns sem voru um borð á skemmtiferðaskipinu greindust síðar með kórónuveiruna og tíu þeirra hafa síðan látist. Skipið er enn við strendur Sydney borgar og eru nærri 200 áhafnarmeðlimir um borð sem eru veikir af COVID-19. Lögreglan í Nýju Suður Wales segir að verið sé að rannsaka hvort lög um líffræðilegt öryggi hafi verið brotin. Staðfest smit í Ástralíu eru nú orðin 5.548 og hafa 30 látist vegna kórónuveirunnar. Þeir sem veiktust um borð á skipinu eru nærri 10 prósent staðfestra smita í Ástralíu. Landið hefur sett á strangar reglur um félagsforðun og hefur skemmtistöðum, kaffihúsum, almenningsgörðum og líkamsræktum verið lokað í von um að hamla útbreiðslu veirunnar. Mick Fuller, lögreglustjóri í Nýju Suður Wales, sagði á blaðamannafundi að enn væri mörgum spurningum ósvarað vegna máls Ruby Princess.EPA/JAMES GOURLEY Mick Fuller, lögreglustjórinn í Nýju Suður Wales, sagði á blaðamannafundi að mörgum spurningum væri enn ósvarað varðandi málið. Þá sagði hann að samkvæmt lögum væri skipum aðeins leift að leggjast að höfn og hleypa farþegum frá boði ef skipstjórinn gæti staðfest við yfirvöld að faraldurinn væri ekki um borð. Þá sagði Fuller að ósamræmi væri í upplýsingum sem hafi verið miðlað til yfirvalda af Carnival Australia, eiganda skipsins, og að lögum hafi ekki verið fylgt. „Eina leiðin til að komast að því hvort lög um líffræðilegt öryggi hafi verið brotin er með því að hefja rannsókn á málinu,“ sagði hann í samtali við blaðamenn. Fuller sagði einnig að daginn áður en farþegar fóru frá borði í Sydney hafi starfsmaður um borð hringt neyðarsímtal vegna tveggja farþega sem þurftu á heilbrigðisaðstoð að halda. Hann sagði að lögreglan hafi verið fullvissuð af eigendum skipsins að kórónuveiran hafi ekki breiðst út á skipinu. „Af þeim ástæðum er mörgum spurningum enn ósvarað,“ bætti hann við. Yfirvöld í Nýju Suður Wales hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa hleypt farþegum frá boði en þau hafa ítrekað að ákvörðunin hafi verið tekin eftir að sérfræðiálits hafi verið leitað. Fuller ítrekaði að Carnival Australia hafi lýst því yfir að fyrirtækið myndi sýna fullan samstarfsvilja við rannsóknina. Fyrirtækið hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um rannsóknina. Um 2.700 manns voru um borð í Ruby Princess þegar skipið kom til Sydney í síðasta mánuði eftir ellefu daga siglingu. 600 farþegar um borð í Ruby Princess hafa greinst með COVID-19 og tíu þeirra létust vegna veirunnar.EPA/ JOEL CARRETT Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í Nýju Suður Wales hafði um tugur farþega greint frá vanlíðan og höfðu sýni verið tekin til að greina hvort um COVID-19 væri að ræða. Einn var fluttur á sjúkrahús með sjúkraflutningabíl. Öðrum farþegum um borð var ekki greint frá þessu. Þess í stað var þeim hleypt frá borði og sumir þeirra voru með hósta samkvæmt vitnum. Höfnin sem skipið lagðist að er alveg við miðborgina þar sem auðvelt er að taka almenningssamgöngur upp á flugvöll og í aðra borgarhluta. Elisa McCafferty, áströlsk kona sem flaug heim til Lundúna með eiginmanni sínum strax eftir að þau fóru frá borði, sagði í samtali við BBC: „Okkur var aldrei sagt að nokkur um borð væri veikur. Það var mjög greinilegt að upplýsingaflæði vantaði frá Prinsessunni allan tímann.“ Daginn eftir að skipið lagðist að höfn greindu yfirvöld frá því að COVID-19 hafi verið greint meðal þriggja farþega sem höfðu verið um borð og hófst þá vinna við að hafa uppi á þeim sem höfðu verið um borð. McCafferty sagði að hún hafi fyrst vitað af hættunni þegar hún skoðaði símann sinn á Heathrow flugvelli í Lundúnum. „Ég var dauðhrædd. Ég hafði verið um borð í tveimur stútfullum flugvélum – hvað ef ég smitaði einhvern?“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ástralía Tengdar fréttir Harðlínumaður gæti velt forsætisráðherra Ástralíu úr stóli Líkurnar á að Ástralir grípi til aðgerða í loftslagsmálum eru ekki taldar aukast ef Petter Dutton leggur Malcom Turnbull í leiðtogakjöri hjá Frjálslynda flokknum. 22. ágúst 2018 11:16 Hryðjuverk í skjóli mannréttinda Ég las nýlega yfirlýsingu frá íslensku félagi sem kennir sig við mannréttindabaráttu, sem að mínu mati einkenndist af hálfgerðu meðvitundarleysi um öll þau mannréttindabrot sem hryðjuverkastjórn Palestínu fremur gegn eigin saklausu íbúum og ísraelskum borgurum. 16. apríl 2018 13:04 Gíslataka í Sydney Vopnaður maður, eða menn, heldur nú fólki í gíslingu á kaffihúsi í Sydney, Ástralíu. 15. desember 2014 00:12 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira
Harðlínumaður gæti velt forsætisráðherra Ástralíu úr stóli Líkurnar á að Ástralir grípi til aðgerða í loftslagsmálum eru ekki taldar aukast ef Petter Dutton leggur Malcom Turnbull í leiðtogakjöri hjá Frjálslynda flokknum. 22. ágúst 2018 11:16
Hryðjuverk í skjóli mannréttinda Ég las nýlega yfirlýsingu frá íslensku félagi sem kennir sig við mannréttindabaráttu, sem að mínu mati einkenndist af hálfgerðu meðvitundarleysi um öll þau mannréttindabrot sem hryðjuverkastjórn Palestínu fremur gegn eigin saklausu íbúum og ísraelskum borgurum. 16. apríl 2018 13:04
Gíslataka í Sydney Vopnaður maður, eða menn, heldur nú fólki í gíslingu á kaffihúsi í Sydney, Ástralíu. 15. desember 2014 00:12