Fleiri en 400 þúsund smitaðir í Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 31. maí 2020 09:34 Samkvæmt opinberum tölum hafa 4.693 dáið í Rússlandi, sem er mun minna en í ríkjum þar sem sambærilegur fjöldi smita hefur greinst. EPA/SERGEI ILNITSKY
Minnst 400 þúsund manns hafa nú smitast af Covid-19 í Rússlandi. 9.268 ný smit greindust á milli daga og hafa minnst 405.843 greinst með sjúkdóminn, sem nýja kórónuveiran veldur. Þá segja opinberar tölur að minnst 138 hafi dáið á milli daga. Smituðum hefur fjölgað hratt í Rússlandi en þeir voru 300 þúsund þann 20. maí. Í aðdraganda þess hafði tilfellum fjölgað um sirka tíu þúsund á dag. Undanfarna daga hefur fjölgunin verið um níu þúsund á dag. Samkvæmt opinberum tölum hafa 4.693 dáið í Rússlandi, sem er mun minna en í ríkjum þar sem sambærilegur fjöldi smita hefur greinst. Til dæmis hafa 498.440 smit greinst í Brasilíu. Þar hafa minnst 28.834 dáið, samkvæmt opinberum tölum, og sérfræðingar telja raunverulegan fjölda látinna mun hærri. Í Bretlandi hafa minnst 274.219 smitast og minnst 38.458 dáið, samkvæmt gögnum frá Johns Hopkins háskólanum, sem byggja á opinberum tölum. Yfirvöld Rússlands hafa verið sökuð um að gefa ekki upp raunverulegan fjölda dauðsfalla vegna faraldursins en hafa brugðist reið við þeim ásökunum. Rússar segja lágt hlutfall dauðsfalla vera vegna umfangsmikillar skimunar þar í landi og að margir sem hafi einungis sýnt væg einkenni séu meðal þeirra sem hafi greinst með veiruna.
Rússland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira