Þrír indverskir hermenn létust í átökum við kínverska herinn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 16. júní 2020 10:18 Þrír indverskir hermenn létu lífið í átökum við kínverska herinn við landamæri ríkjanna í Kasmír. Getty/Faisal Khan
Þrír indverskir hermenn létu lífið í átökum við kínverska herinn í Ladakh vegna deilna um Kasmír héraðið. Samkvæmt upplýsingum frá indverska hernum sem birtar voru á vef breska ríkisútvarpsins munu yfirmenn beggja herja funda til að koma í veg fyrir frekari átök og bættu við að báðar hliðar hafi orðið fyrir áfalli. Kínversk yfirvöld brugðust við þessu með því að biðja Indland um að beita ekki einhliða aðgerðum eða búa til vandræða. Kína hefur einnig sakað Indland um að hafa farið yfir landamærin og að hafa ráðist á kínverska hermenn. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, Zhao Lijian, er sagður hafa sakað indverska herinn um að hafa farið yfir landamærin án leyfis, ögrað og ráðist á kínverska hermenn sem olli því að átök brutust út milli landamæravarða landanna. Kínversk yfirvöld hafa ekki greint frá mannfalli innan sinna raða. Þó hefur kínverska fréttablaðið Global Times greint frá því að Indland hafi verið ávítað vegna atviksins. Spenna hefur aukist gríðarlega milli landanna tveggja undanfarið og hefur Indland sakað Kína um að hafa sent þúsundir hermanna inn í Galwan dalinn í Ladakh. Dauðsföllin eru þau fyrstu í áratugi í átökum milli ríkjanna tveggja. Aðeins eitt stríð hefur verið háð hingað til, árið 1962, sem Kína sigraði með yfirburðum. Indland hefur þá sakað Kína um að vera með viðveru á stóru svæði sem tilheyrir Indlandi. Löndin hafa ítrekað fundað til að ræða landamæradeilurnar en aldrei hafa viðræðurnar borið árangur.
Indland Kína Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira